BMW hefur opinberað nýja BMW 5 Series Touring, sem mun koma til Bretlands sem tengiltvinn og rafknúinn i5 Touring.
Aðrir alþjóðlegir markaðir munu einnig hafa möguleika á mild-hybrid bensín- og dísilútgáfum, en sala í Bretlandi mun hefjast með rafmagns i5 áður en sala á tengiltvinnbílnum 530e hefst síðar á árinu 2024.
Rúmgóður
Þessi nýja kynslóð BMW 5 Series Touring erfir mest af eiginleikum og tækni frá nýja 5 Series fólksbílnum, en pakkar þeim nú snyrtilega inn í skutbíl.
Farangursrýmið er um 570 lítrar með aftursætin á sínum stað og allt að 1.700 lítra með þau niðurfelld, sem gerir burðargetuna örlítið minni en hjá keppinautnum en Mercedes E-Class Estate, býður upp á 615 lítra og 1.830 lítra, í sömu röð.
Það sem Mercedes getur auðvitað ekki gert er að að bjóða alrafknúna aflrás i5 Touring og þar til nýr Audi A6 e-tron Avant kemur síðla árs 2024 hefur BMW enga beina keppinauta um rafmagns skutbílaflokknum.
Mercedes býður upp á rafknúna EQE sportjeppann en þrátt fyrir aukna hæð er hann í raun með minna farangursrými eða 520 lítra eða 1.682 þegar sætin eru niðri.
Tvær aflrásagerðir
BMW i5 Touring er fáanlegur með tveimur aflrásarvalkostum sem byrja á eins mótors eDrive40 sem parar 334 hestafla rafmótor að aftan við 81,2 kWh (nothæfan) rafhlöðupakka. Áætluð drægni bílsins er allt að 560 km. með nokkuð ágætum 0-100km/klst. tíma eða 6.1 sekúndur.
Efst mun svo tróna afkastamikil M60 gerð sem bætir við öðrum rafmótor og eykur afl í allt að 592 hestöfl. Hann er að fara úr 0-100 km/klst. á 3.9 sekúndum en fer að sama skapi ekki eins langt á hleðslunni.
Væntanlegur síðar á árinu verður 530e tengiltvinnbíllinn sem deilir 294 hestafla mótor fólksbílsins. Í þessu tilfelli parar BMW 2 lítra fjögurra strokka bensínvél með forþjöppu við rafmótor sem getur gengið fyrir rafhlöðuafli allt að 96 km. á fullri hleðslu. Þetta er sambærilegt við Mercedes E300e Estate, sem fer þó aðeins um 80 km. á fullri hleðslu skv. WLTP staðlinum.
Enginn dísel í Bretlandi
BMW hefur ákveðið að bjóða ekki upp á mild-hybrid bensín- eða dísilbíla í Bretlandi, þrátt fyrir að bjóða upp á 520i fólksbíl. Þetta er eitthvað sem helsti keppinauturinn, Mercedes gerir enn með E-Class en það gæti dregið eitthvað úr eftirspurninni fyrir flotarekstur.
Samhliða nýja i5 bílnum kynnir BMW nýjan Sport Edition fyrir bæði fólksbílinn og skutbílinn sem verður á betra verði og er í raun grunntýpa. Það verða samt sem áður rausnarlegir staðalbúnaðarlistar í grunntýpunni.
Verð fyrir BMW 530e Touring tengiltvinnbílinn verður opinberað síðar á árinu, en i5 Touring er kominn í sölu í Bretlandi og verðið er frá um 12.100.000 kr. fyrir eDrive40 Sport gerðina en toppgerðin, M60 er á um 17.300.000 kr.
Byggt á grein Autoexpress.
Umræður um þessa grein