BMW kemur með fulla rafmagnsútgáfu af 5 seríunni – X1 mun ryðja brautina
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f1f4babb2b2f4339bd11dc8_BMW1.jpg)
FRANKFURT – BMW mun bjóða upp á rafknúnar gerðir af 5 seríunni og X1 sem hluta af uppstokkun á framleiðslunni. Þetta var kynnt á mánudag þegar bílaframleiðandinn kynnti aðgerðir til að draga úr losun frá ökutækjum á vegum og við framleiðsluna.
„Á tíu árum er markmiðið að vera með samtals meira en sjö milljónir rafmagnsbíla frá BMW Group á vegunum – um það bil tveir þriðju hlutar þeirra með fullkomlega rafknúna drifrás“, sagði fyrirtækið á mánudag.
Bílaframleiðendur hafa keyrt á raforkuna allt frá því að evrópskar löggjafarsamkomur fyrirskipuðu í desember 2018 að draga úr losun koltvísýrings frá bílum um 37,5 prósent árið 2030 miðað við stöðuna árið 2021. Þetta mun koma í kjölfar 40 prósenta losunar milli áranna 2007 og 2021.
Fimm rafbílar
Frá og með næsta ári segist BMW Group bjóða fimm rafmagnsbíla: BMW i3, Mini Cooper SE, BMW iX3, BMW iNext og BMW i4. IX3-bíllinnmun hefja sókn fyrirtækisins á sviði rafbíla.
Alls mun BMW vera með 25 gerðir rafbíla á vegunum árið 2023, þar af um helmingur að fullu með rafmagn.
Forstjóri BMW, Oliver Zipse, neitaði að gefa upp hvenær rafbílagerðir 5-seríunnar eða X1 komi á markaðinn. Báðar gerðirnar verða fáanlegar í framtíðinni með fjórum afbrigðum drifrásar, þar á meðal fullri rafmagnsdrifrás, tengitvinnbúnaði, dísil og bensín með 48 volta tækni.
Bílaframleiðandinn sagði einnig að stjórnunaraðgerðir fyrirtækisins verði í meira samræmi við loftslagsmarkmið og að kolefnislosun frá framleiðslu og vinnusvæðum verði lækkuð um 80 prósent á hvern bíl.
(Reuters / Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein