BMW hrellir Mercedes
Í nýliðinni viku [Ath. þetta er grein frá 2019] birti BMW USA mynd á Twitter. Þarna voru BMW menn að nýta tækifæri sem hrekkjavakan bandaríska bauð uppá, en þá klæðast börn og fullorðnir oft búningum og látast vera einhverjir aðrir en þeir eru.
Þegar að er gáð má sjá að búið er að klæða Mercedes Benz fólksbíl í líki BMW. Við myndina er svo textinn: Meðan á hrekkjavökunni stendur geta allir klætt sig eins og uppáhalds ofurhetjan þeirra!
Mercedes USA var samt ekki lengi að svara fyrir sig og gerði stólpagrín að grilli BMW, sem mörgum finnst vera orðið of stórt, og sagði: „Úú, við erum hræddir… sérstaklega við þetta grill!“
Umræður um þessa grein