BL hefur afhent þrjú þúsund rafbíla
BL við Sævarhöfða afhenti síðasta fimmtudag þrjúþúsundasta rafbílinn frá því að fyrirtækið hóf sölu rafbíla árið 2013.
Bíllinn sem afhentur var er af gerðinni BMW iX Atelier xDrive40, sem er nýjasti fjórhjóladrifni jepplingurinn frá BMW og frumsýndur var við hátíðlega athöfn hjá BL í október á síðasta ári.
Bíllinn, sem hefur um 425 km drægni á rafhleðslunni, er 326 hestöfl og getur dregið 2,5 tonn á dráttarkróki sem er mesta dráttargetan á rafbílamarkaðnum.
Hreinir rafbílar með sífellt stærri sneið af kökunni
Sala rafbíla hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum samfara auknu framboði frá öllum helstu bílaframleiðendum heims enda nálgast hlutfall nýskráðra rafbíla nú að verða 20% í heildarsölu fólksbíla hér á landi. Sem dæmi um þessa þróun má nefna að frá því að BL nýskráði fyrsta rafbílinn árið 2013 liðu ríflega fimm ár þar til fyrirtækið hafði selt eitt þúsund slíka bíla, sem var í árslok 2018.
Frá þeim tíma leið aðeins 21 mánuður þar til fyrirtækið hafði nýskráð eitt þúsund rafbíla til viðbótar, en það var í lok ágúst árið 2020. Síðan þá liðu átján mánuðir þar til BL nýskráði í vikunni þrjúþúsundasta rafbílinn og afhenti í dag Pétri Steinþórssyni flugmanni bíllyklana með viðhöfn í sal BMW við Sævarhöfða.
Mikið úrval rafbíla
Að lokum má geta að alls selur BL sextán mismunandi gerðir hreinna rafbíla frá níu framleiðendum, auk fjölda tengiltvinnbíla og er úrval nýorkubíla hvergi meira hér á landi. Frá 2013 hefur rúmur þriðjungur nýskráðra rafbíla á landinu verið frá framleiðendum sem BL hefur umboð fyrir. Sé bæði litið til nýskráðra og innfluttra notaðra rafbíla er hlutfallið 41,2%.
Umræður um þessa grein