BL frumsýnir aldrifna rafjepplinginn Subaru Solterra
BL við Sævarhöfða frumsýnir nk. laugardag, 5. nóvember, fjórhjóladrifna og rafknúna jepplinginn Solterra frá Subaru. Solterra markar þáttaskil í sögu Subaru því þessi aldrifni jepplingur er sá fyrsti í sögu fyrirtækisins sem boðinn er í 100% rafdrifinni útgáfu.
Solterra er vel búinn fimm manna fjölskyldubíll með 80 kW rafmótor við hvorn öxul sem skila saman 218 hestöflum og 335 Nm togi og er hröðun bílsins 7,6 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst.
Rafhlaðan í undirvagninum er 71 kWh og skilar hún allt að 466 km drægi sem gerir ferðalög milli flestra landshluta fyrirhafnarlaus og þægileg við venjubundnar aðstæður.
Þægilegur og rúmgóður
Solterra er með 7″ upplýsingaskjá í mælaborði og rúmlega 12 tommu miðlægan snertiskjá fremst á miðjustokknum milli framsætanna.
Á honum eru stjórntakkar fyrir allar helstu aðgerðir, s.s. afþreyingu og leiðsögukerfi með Íslandskorti svo nokkuð sé nefnt. Þá er farþegarýmið einnig búið vönduðu 6 hátalara hljóðkerfi í grunngerðinni og 11 í dýrari útfærslum sem auk þess eru búnar Harman Kardon hljóðkerfi.
Þá er Solterra búinn tveggja svæða miðstöð og ýmsum hleðslumöguleikum svo nokkuð sé nefnt og hægt er að kynna sér betur á sýningunni á laugardag milli kl. 12 og 16.
Háþróað öryggi
Á bæði bl.is og subaru.is er gott yfirlit um háþróaðan öryggisbúnað Solterra en vert er að nefna nýjan öryggisbúnaðarpakka, Subaru Safety Sense, sem inniheldur fjölda öryggisaðgerða til aðstoðar í akstri og ekki síður hvað varðar öryggi farþega.
Þannig varar öryggisbúnaðurinn t.d. farþegana við aðvífandi bíl sé einhver bílhurðanna opnuð auk þess sem kerfið greinir og varar við nálægum bílum og gangandi vegfarendum, t.d. fyrir aftan bílinn og lætur vita sé sett í bakkgír.
Einnig veitir öryggiskerfið ökumanni 360 gráðu yfirsýn yfir bílinn sem auðveldar ökumanni að átta sig til fulls á aðstæðum.
Þrjár búnaðarútfærslur
Subaru Solterra er boðinn í þremur útfærslum, Premium, Lux og Lux+ og er verðið frá 7.290 þúsundum króna.
Umræður um þessa grein