Bíllinn sem breytti sögunni
Ford Model T – 1908-1927
Þegar farið er um netheima má finna endalausar frásagnir um gamla bíla og hvernig þeir urðu til. Sumir bílar setja svip sinn á bílasöguna aðrir fóru langt umfram það til að breyta sögunni í grundvallaratriðum. Model T sem Henry Ford skapaði er ákveðið dæmi um hið síðarnefnda.
Reyndar má færa rök fyrir því að Model T sé mikilvægasti bíll sögunnar, og þótt við höfum áður skrifað um þennan merka bíl hér á vefnum þá má alveg rifja þetta upp aftur. Grípum hér niður í frásögn Jim Cherry hjá curbside.tv í Bandaríkjunum, þar sem hann fer yfir sögu Ford Model T.
Ford Model T, sem var framleiddur frá 1909-1927, uppfyllir sannarlega það sem um hann hefur verið sagt: „bílsins sem setti Ameríku á hjól“. Meginhugmynd Henry Ford um að smíða einfalda, hagkvæma bíla með fjöldaframleiðslulínu bjó til fyrsta bílinn fyrir venjulega Bandaríkjamenn.
Eins og hann orðaði það: „Ég mun smíða bíl fyrir fjöldann“.
Og hann bætti við: „Hann verður nógu stór fyrir fjölskylduna en nógu lítið til að einstaklingurinn geti átt hann og sinnt honum. Hann verður smíðaður af bestu efnum, af bestu mönnunum sem ráðnir verða, eftir einföldustu hönnun sem nútíma verkfræði getur hugsað sér.
En bíllinn mun verða svo lágt verðlagður að enginn sem vinnur góð laun mun ekki geta átt slík – og njóta með fjölskyldu sinni blessunar ánægjustundanna í stórum opnum rýmum Guðs“. Árið 1914 þurfti til dæmis dæmigerður starfsmaður Ford sem vann við samsetningu bílsins að vinna í fjóra mánuði til að vinna sér inn það sem Model T kostaði.
Ford hneykslaði viðskiptalífið þegar hann hækkaði laun verksmiðjufólksins í 5 dollara á dag, nóg til að þeir hefðu efni á að kaupa bíla hans. Um fimmtán milljónir bíla Ford T voru seldir áður en framleiðslu var hætt árið 1927 því þá var skipt yfir í Ford Model A.
Áætlun Henrys vann frábærlega vel og gerði Model T einn farsælasta bíl sem smíðaður hefur verið hvað varðar sölu, með yfir 15 milljónir seldar. Einföld hönnun Model T gerði það vel til þess fallið að landbúnaðarland náði nokkuð vel að fóta sig inn í nútímann.
Á tímum þar sem fram kom fullt af alls kyns tilraunum til að átta sig á því hvað bíll ætti að vera var Ford T einfaldur og áreiðanlegur. Allt sem ökumenn þurftu að gera var að snúa hann í gang og aka af stað, að minnsta kosti til 1919, þegar allir Model T fengu startara.
Á árunum 1908-14 var Model T í boði með vali á gráum, rauðum eða grænum litum.
Árið 1912 voru allir málaðir bláir með svörtum skítbrettum. Frá 1913 var svarti eini liturinn sem boðið var upp á. Ford valdi svart því sá litur (og lakk) var fljótast að þorna.
Sérkenni Ford Model T, sem fékk gælunafnið „Tin Lizzy“, voru slík að allir ökumenn elskuðu bílana það. Vegna þess að engin bensíndæla var í bílnum og ökumenn urðu að reiða sig á þyngdaraflið til að láta bensínið renna að vélinni þurfti oft að keyra þá aftur á bak upp brattar hæðir. Þar sem bensíntankurinn var staðsettur undir framsætinu könnuðu ökumenn eldsneytishæðina með því að lyfta sætinu og dýfa priki í tankinn.
Fótstig stjórnaði plánetugírnum í Model T, en enginn kúplingspedali var til staðer, né fótstig fyrir inngjöfina – stöng á stýrisstönginni stjórnaði hraðanum. Fjögurra strokka vél bílsins framleiddi 20 hestöfl og gaf honum hámarkshraða 70 km/klst.
Ameríka átti fáa vegi á þessum tíma með bundnu slitlagi þegar „T“ var kynntur. Hin harðgerða, „Lizzy“ með mikla veghæð var fullkominn fyrir landbúnaðarþjóð.
?
Skemmtilegar staðreyndir um Ford Model T
- Árið 1914 var Ford að smíða fleiri bíla en allir aðrir bílaframleiðendur samanlagt.
- Skiptvélar fyrir Model T voru áfram í framleiðslu þar til seint á árinu 1941.
- Síðasti Model T var smíðaður árið 2002 þegar Ford Motor Company smíðaði sex bíla sem hluta af aldarafmælinu.
- Yfirbygging bílsins var með ramma úr harðviði. „Kingsford Charcoal Company „var stofnað til að endurvinna tréúrgang sem verð til eftir í framleiðslu á Model T og búa til viðarkol.
- Fjögurra strokka vél bílsins framleiddi 20 hestöfl.
- Hámarkshraðinn var 70 km/klst.
- Það voru ekki almennilegar bremsur á hjólunum, bara bremsa á vélinni.
- Árið 1925 var Ford að smíða 9.000 Model T á dag.
- Þegar tíu milljónasti Model T var smíðaður var helmingur allra bíla heimsins frá Ford.
Ford bjóst við að smíða Model T með stigvaxandi endurbótum langt inn í framtíðina. Svo kom Chevrolet með fullkomnari bíl á aðeins hærra verði.
Ford rak stjórnandann sem lagði fyrst til að fara frá Model T og byrja upp á nýtt, en minnkandi sala sannfærði hann að lokum um að hætta með Model T og kynna alveg nýja gerð, sem varð þekkt sem Model A.
Í dag er Ford T bíla minnst með hlýju. „Hot rodder“-bílar frá 1950-60s eru enn þá vinsælir í breytingar. Hinar fjölbreyttu gerðir Model Ts („run about“, fólksbíll, coupé, sendibíll, “Depot Hack” stationbíll, vörubíll, “Touring” fjögurra dyra blæjubíll, bíll með flötum palli og skúffubíll) birtast enn reglulega á bílasýningum til að vekja ljúfar minningar hjá þeim eldri og undrun í hjá þeim yngri.
Fyrsti Ford T-bíllinn kom til Íslands sumarið 1913
Eftir nokkrara frekar misheppnaðar tilraunir til að flytja inn bíla til Íslands sameinuðust nokkrir Íslendingar í Vesturheimi árið 1913 um að kaupa Fordbíl og flytja til Islands. Var þetta gert að tilstuðlan séra Jakobs O. Lárussonar sem þá gegndi prestsþjónustu í Íslendingabyggðunum fyrir vestan.
Þessi fyrsti Ford-bíll kom til landsins 20. júní 1913, eða sama dag og Thomsens-bíllinn hafði komið níu árum áður.
Með bílnum komu tveir þeirra manna sem bundist höfðu samtökum um kaupin, þeir Sveinn Oddsson og Jón Sigmundsson. Var bíllinn kenndur við Svein upp frá því.
Koma þessa bíla til landsins varð til þess að opna augu manna til fulls fyrir notagildi bílsins fyrir landsmenn. Urðu margir til þess að taka sér far með bílnum og var farið víða, jafnvel langt austur um sveitir. Bílaöldin var gengin í garð á Íslandi.
(byggt á grein á vef curbside.tv og DV Bílum 1984)
Umræður um þessa grein