Bílar og knattspyrna: Hvaða bíll vinnur HM?
Eins og varla hefur farið fram hjá neinum er heimsmeistaramótið í knattspyrnu nýhafið. 32 landslið bítast um titilinn og sparkspekingar úti um allan heim velta vöngum yfir, og rífast jafnvel um hvaða þjóð sé sigurstranglegust á mótinu.
Ekki tel ég mig hafa mikið vit á knattspyrnu þó ég geti alveg tekið þátt í þeim vangaveltum. En ég fékk hugmynd: Getur verið að bílaeign hinna ólíku þjóða sem á móti þessu etja kappi geti sagt okkur eitthvað um hugsanlegt gengi þeirra?
Þetta kann að hljóma fáránlega en ég ætla samt að athuga málið aðeins. Nú þegar fyrstu umferð er lokið ætla ég að bera saman úrslit leikja í hverjum riðli og bera saman við hver er mest seldi bíllinn í hverju landi.
Hver veit nema ég finni eitthvert munstur, sem nota má til að segja fyrir um úrslit leikja. Eftir ítarlegar rannsóknir með dyggri aðstoð Google er það kenning mín að þjóðin, þar sem litlir bílar eru vinsælastir hafi alltaf (eða alla vega oftast) betur.
Skoðum þetta aðeins nánar og förum í gegn um alla riðlana.
Ef þessi kenning mín reynist rétt ætti því að vera hægt að spá fyrir um hvaða tvær þjóðir komast upp úr hverjum riðli.
A-riðill: Í Ekvador er Chevrolet Spark mest seldi bíllinn en í Katar er það Toyota Land Cruiser. Þó Cruiserinn sé miklu stærri og dýrari og flottari bíll er Sparkinn óneitanlega snúningaliprari, enda vann Ekvador.
Hollendingar kaupa mest Toyota Yaris en Senegalar Mitsubishi L200. Hér gerðist það saman, minni og liprari bíllinn vann.
Hverjir fara áfram: Ekvador og Holland
B-riðill: Englendingar kaupa mest af Tesla Y meðan Íranir kaupa Saipa Tiba (Íranssmíðaðan smábíl).
Hér var það nútímatæknin sem bar sigurorð af gamaldags og óspennandi smábílnum. Bandaríkin með sinn Ford F pallbíl gerðu jafntefli við Wales, þar sem Toyota Aygo er vinsælastur.
Hér hefðu, skv. kenningunni Íranir og Wales átt að vinna leikina, svo ljóst er að þessi riðill fylgir ekki formúlunni.
Hverjir fara áfram: Íran og Wales
C-riðill: Hér snúa hlutirnir á annan veg. Toyota Camry Saudi Arabanna lagði hinn litla og lipra Fiat Cronos Argentínumanna, enda þóttu úrslitin í meira lagi óvænt.
Í hinum leiknum varð jafntefli milli hins Mexíkóska Chevrolet Aveo og Toyotu Corollu Pólverjanna.
Hverjir fara áfram: Argentína og Mexíkó
D-riðill: Hér áttust fyrst við tveir smábílar, Citroen C3 Dananna og hinn kínverska Chery QQ, Túnismanna, enda varð jafntefli. Frakkar notuðu síðan Peugeot 208 til að bursta Ford Ranger Ástralanna.
Hér var það því aftur smábíllinn sem hafði betur og svo er að sjá að pallbílar og jeppar eigi í vök að verjast.
Hverjir fara áfram: Frakkar og Danir
E-riðill: Hér mætir enn einn pallbílinn á sviðið í leik Spánverja og Costa Rica. Í ljósi þess sem þegar er komið fram var viðbúið að hann mundi tapa enda kom það á daginn.
Hyundai Tucson Spánverjanna bókstaflega valtaði yfir Hi Luxinn. Í hinum leiknum, leik Þýskalands og Japan bar Yarisinn sigurorð af Golfinum. Í þessum riðli vann því smærri bíllinn báða leikina.
Hverjir fara áfram: Spánn og Japan
F-riðill: Hér erum við komin í erfiðan riðil, því ekkert liðanna skartar sérlega stórum bíl sem sínum vinsælasta. Það er helst að Skoda Octavia Króatanna standi út úr hópnum. Þeir gerðu þó jafntefli við Dacia Sandero Marokkómannanna. Belgar á Citroen C3 unnu síðan Kanadamenn á Hyundai Kona.
Hverjir fara áfram: Belgía og Marokkó
G-riðill: Sviss teflir fram Skoda Octavia en Kamerún Kia Rio. Kamerúnar hefði því átt að vinna samkvæmt smábílakenningunni en svo fór ekki. Octavian lagði smábílinn.
Leikur Brasilíu og Serbíu var ákaflega áhugaverður þar sem Brasilíumenn kaupa mest Fiat Strada, sem er pallbílsútgáfa af millistórum fólksbíl og Serbar Skoda Octavia.
Hér skartar sem sagt hvorug þjóðin smábíl, sem kenningin segir að eigi að vara sigurstranglegra. Og enn athyglisverðara er að pallbíllinn skyldi vinna, sá eini í allri keppninni.
Hverjir fara áfram: Kamerún og Brasilía
H-riðill: Portúgalir kaupa mest af Renault Clio. Þeir spiluðu við Ghana, hvar mest er selt af Toyotu Corollum.
Enda vann Portúgal því Clioinn er jú minni en Corollan. Í hinum leiknum í riðlinum gerðu Suður Kórea og Úrugvæ jafntefli, enda hvorug þjóðin hrifnust af smábílum.
Kóreubúarnir kaupa mest Hyundai Grandeur, sem er fjarri því að vera smábíll á meðan Úrúgvæjar kaupa helst Fiat Strada, sem er pallbílsútgáfa af millistórum fólksbíl. Út frá kenningunni er því hvorugt liðið líklegt til árangurs.
Hverjir fara áfram: Portúgal og Ghana
Ég er ekki frá því að það sé þó nokkuð vit í þessari kenningu. Lesendur geta, ef þeir eru ekki fyrir löngu hættir að lesa þetta bull, skemmt sér við að máta hana við framhaldið.
Umræður um þessa grein