Ó Ameríka! Það sem ekki er til í Ameríkunni stóru…
„Ertu klár í bíltúr inn í eilífðina?“ Þetta er slagorð líkkistusmiðs nokkurs í Bandaríkjunum en hann er einn þeirra sem smíða óhefðbundnar kistur; Bílalíkkistur fyrir bílaáhugamenn.
Komdu og skoðaðu í kistuna mína…
…því þar er kannski einn kaldur!
Smiðurinn sá hvetur fólk til að kaupa kistuna tímanlega áður en „ákveðið“ er að hrökkva endanlega upp af standinum því kisturnar megi nefnilega nota í, eða undir, eitt og annað. Þær hafa til að mynda slegið í gegn sem „kælikistur“ þar sem kistan er nánast fyllt af klökum og drykkjum komið þar fyrir. Algjört „partítrix“, vill framleiðandinn meina.
Nú haldið þið kannski, lesendur góðir, að ég sé að rembast eins og rjúpan við staurinn, við að vera fyndin. En það er alls ekki svo. Þetta er dauðans alvara!
Samt er þetta nú alveg drepfyndið, ef maður lítur þannig á það.
Eigin bílakirkjugarður kveikti hugmyndina
Kistusmiðurinn Danny Mendez er mikill bílaáhugamaður og er raunar „lágfari“ eða „lowrider“ sjálfur.Hann fékk hugmyndina um smíði á bílalíkkistum um aldamótin. Þá leit Danny yfir bakgarðinn heima hjá sér, horfði á alla bílana sem hann nennti ekki að gera við og hugsaði: „Þetta er nú bara að verða eins og bílakirkjugarður.“ Þannig var nú það.
En það gæti verið að fyrirtækið sé ekki í fullu fjöri þó að vefsíðan sé til því síðasta færslan á Facebooksíðu fyrirtækisins er frá 2017. En hvað sem því líður þá kostar bíllinn, ég meina kistan, frá 5.500 dollurum en það eru tæplega 720.000 krónur.
Umræður um þessa grein