Formúluökumaðurinn Sebastian Vettel virðist vera maður sem kemur auga á hið spaugilega í lífinu og það sama má segja um Mick Schumacher. Það er nauðsynlegt að fíflast dálítið endrum og sinnum og hér er slegið á létta strengi í stuttri samantekt um þá tvo.
Myndbandið samanstendur af klippum með þeim Vettel og Schumacher sem teknar voru upp í Svíþjóð fyrir rúmum mánuði síðan.
Hér má til dæmis sjá og heyra útskýringar Vettels á því af hverju myndir birtust af honum þar sem hann stendur úti í brunagaddi íklæddur stuttbuxum og stuttermabol með snjó og klaka í skegginu…
Fleira af sama meiði:
Tveir öðlingar: Häkkinen og Coulthard
Ísbaðsáskorun ökumanna
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein