Fimmtíu manns vörðu heilum mánuði hér á landi á vegum Lamborghini í miklu ævintýri: „Esperienza Avventura“. Í gær voru myndir úr þessu ævintýralega ferðalagi fyrst birtar á veraldarvefnum. Myndirnar eru stórkostlegar!

Ellefu Lamborghini Urus, fimmtíu viðskiptavinir og rúmlega fimm þúsund kílómetra ferðalag undir yfirskriftinni „Esperienza Avventura“ eða Ævintýraupplifun (eða eitthvað í þá veru). Þetta var ferð til Íslands.

Lamborghini skipulagði ferðina fyrir þá viðskiptavini sem vildu upplifa almennilegt ævintýri í umhverfi þar sem allt, já allt, getur gerst! Velkomin til Íslands.

Daglega voru að meðaltali eknir um 300 kílómetrar.

Farið var eftir suðurströndinni, Reykjanesið skoðað og já, ætli við könnumst ekki flest við staðina út frá myndunum. Kannski óþarfi að tíunda nákvæmlega hvar ekið var.



Hér er m.a. fjallað um ferðina.

Og einnig má lesa um ferðina hér.



Nánari umfjöllun á síðu framleiðandans um Esperienza Avventura er að finna hér.

Þvílíkar myndir og þvílíkt landslag!












Það er nokkuð skondið til þess að hugsa að hér á landi sé raunar enginn bíll til af þessari gerð. En þannig er það nú bara.




[Ljósmyndir: Lamborghini.com]
Fleiri fallegir bílar í íslensku umhverfi:
Nýr Range Rover Sport við Kárahnjúka
Ísland er landið sem bílaframleiðendur velja
Íslandsáskorun Top Gear og Bentley
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein