Karlinn á þessum æpandi græna Bentley sem sést hér, er víst þekktur fyrir að vera æpandi brjálaður í umferðinni. Myndbandinu (sem er um 6 mánaða gamalt) var nýlega deilt á Reddit og þar kom í ljós að þessi breski vegaspillir er hreinlega frægur gleðispillir að auki.
Og ekki er vitsmununum fyrir að fara en ef þeir eru þarna einhvers staðar þá eru þeir vel faldir. Það eru ekki margir svona bílar í umferðinni og þá sérstaklega er þessi litur bæði sjadgæfur og verulega áberandi. Svo er númerið BIG TAJ eftirminnilegt.
Þeir sem lenda í þessum tryllta ökumanni í umferðinni (t.d. þeir sem hann ógnar með kylfunni) þurfa því bara að muna fáein atriði til að vísa löggunni á manninn.
Skyld vitleysa:
Vondir bílstjórar á fínum bílum?
„Ertu klikkaður?“ Bílasali brjálast
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein