Ekki þykir við hæfi að gera lítið úr því sem lítið er fyrir og því ætla ég ekkert að minnast á gáfur eða greindarfar ökumannsins í myndbandinu. En skynsamur virðist hann ekki. Langt því frá!
Eitt er að aka eins og stigamaður. Annað er að aka eins og stigamaður, taka það upp og birta á YouTube! Þetta er svo víðáttuvitlaust að það minnir á mann sem rænir hraðbanka en notar greiðslukortið sitt til að komast inn…
Hér í myndbandinu sjáum við svokallaðan kjánaakstur í umferðinni. Ekki inni á þar til gerðu lokuðu aksturssvæði. Þetta er stutt myndskeið en endilega gefið ykkur tíma, að kjánaakstursáhorfi loknu, til að renna yfir nokkrar athugasemdir hér fyrir neðan sem undirrituð tók saman og hafa verið gerðar við myndbandið síðan það birtist fyrir tæpum sólarhring.
Hér er vikugamalt myndband frá sama náunga sem virðist vera tölvugrafíkdúddi sem stundum gleymir hvort hann sé í tölvuleik eða raunveru„leik“:
Hér eru nokkrar athugasemdir sem ég snaraði yfir á íslensku því það er svo gott og gaman!
„Einu sinni ók ég svona. En svo áttaði ég mig á hversu heimskulega það leit út frá sjónarhorni þeirra sem horfðu inn í bílinn. Glannaskapurinn, hraðaksturinn og grasreykingar næstum eyðilögðu líf mitt, lífið sem ég þurfti að setja á pásu meðan ég sat inni í fangelsi.“
Annar skrifar:
„Það er alltaf stórfurðulegt þegar fólk kvikmyndar eigin afbrot, póstar á Netið og heldur að það hafi engar afleiðingar.“
Og enn annar:
„Ég ók svona en svo varð ég eldri og vitkaðist. Það er ekki þess virði að hætta lífi og limum annarra í leiðinni. Ef þú vilt endilega aka svona hættu þá alla vega að svína svona á fólk eins og krakkakjáni.“
Athugasemdirnar eru nokkrar, eða hátt í 200 talsins við nýrra myndbandið og virðast flestir sem þær rita vera á því að þetta sé sennilega ekki alveg nógu sniðugt.
En kannski er þetta bara ótrúlega raunverulegur tölvuleikur sem lítur út eins og bandvitlaus maður sé að aka bíl. Vonandi. Í það minnsta er þetta YouTube rás sem eingöngu sýnir kjánaakstur eins manns.
Annað í svipuðum dúr:
Vondir bílstjórar á fínum bílum?
England 1964: Hvernig á EKKI að haga sér í umferðinni
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein