Í langri og þekktri sögu Citroen eru nokkur athyglisverð tímabil. Eitt þeirra er þegar SM bíllinn frá 1970 og sló í gegn má segja, öðruvísi að öllu leyti. Nú er búið að hanna nýja útgáfu af SM til að minnast þess gamla. Hann hefur verið kallaður SM Tribute.
SM Tribute var smíðaður til að fagna því að 10 ár eru liðin frá því að DS aðgreindi sig frá Citroën og varð að sér vörumerki. SM Tribute er hannaður af teymi DS Design Studio í París.
Þetta er aðeins hugmyndabíll, en DS SM Tribute verkefninu var hrundið af stað til að gera SM sem myndi passa fyrir daginn í dag.
Það er meira að segja gefið í skyn að SM Tribute muni hafa áhrif á framtíðarbíla DS þar sem Thierry Metroz, hönnunarstjóri DS Automobiles, segir: „Við erum að fara í gengum klassísku gerðirnar okkar til að koma af stað þróun bíla sem sem munu koma í lok áratugarins.”
Undirtónn um að nýtt flaggskip DS sé í mótun heyrðist frá yfirmanni DS, Oliver Fransçois fyrr á árinu í samtali við Auto Express. Kannski er DS SM Tribute bíllinn sem um er rætt?
DS segir að hönnunarteymið hafi unnið „eins og SM hefði haldið áfram að þróast undanfarna fimm áratugi”.
Líkindin á milli bílanna tveggja eru strax augljós þar sem hin upprunalega slétta hönnun og loftaflfræðilegur stíll Robert Opron er fluttur yfir í nýja SM Tribute, en heildarhlutföllin eru heldur ekki langt undan, þrátt fyrir að nýi bíllinn sé 3 sm lengri og 2 sm hærri.
SM Tribute er hins vegar 14 sm breiðari og situr 3,5 sm neðar en gamli bíllinn.
Einn af mörgum sjónrænum eiginleikum sem hjálpuðu upprunalega SM að skera sig úr var samþætting framljósa og númeraplötu í glersvæði þar sem þú myndir venjulega finna efra grill.
Nýi SM Tribute er með 3D skjá í nefinu sem getur lýst upp miðhlutann – brotinn upp af þremur einstökum ljósum (sama fjölda og á SM, þó þetta séu nú dagljós).
Drappaði liturinn frá 1970 er andstæða við svarta litinn sem er að finna á vélarhlífinni.
Undir bílnum sést svo í 22 tommu felgur, eða að minnsta kosti hluta þeirra vegna þess að SM Tribute er auðvitað með sett af færanlegum hlífum á afturhjólunum – sem minnir á upprunalegu gerðina.
Yfirbyggingin mjókkar einnig aftureftir bílnum og nær þannig svipaðri lögun og sá gamli.
Afturljósin eru hæfilega dramatísk, vefjast um afturhlutann og flæða yfir hlífarnar á afturhjólunum.
Innréttingin hefur fengið blöndu af hönnun frá 1970 og nútímatækni. Það eru sporöskjulaga form fyrir afþreyinguna og skjárinn er sýndur í gegnum bogadregið gegnsætt „skjáborð” sem DS heldur fram að sé „yfirgripsmeira, en er minna takmarkandi fyrir ökumann og farþega”.
Sætin eru mjög lík þeim sem voru í upprunalega SM og setja hönnun og þægindi í forgang fram yfir sportlegan blæ.
DS SM Tribute verður til sýnis á tíu ára afmæli Concours d’Elegance Chantilly Arts & Elegance þann 15. september.
Uppruni: Auto Express
Umræður um þessa grein