Jeep Wrangler Rubicon og Jeep Grand Cherokee
Tvær goðsagnir í heimi jeppa verða frumsýndar á glæsilegri bílasýningu ÍSBAND laugardaginn 14. september kl. 12:00-16:00 í sýningarsal ÍSBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ.
Jeep Grand Cherokee – Goðsögnin endurfæðist sem Plug-in Hybrid
Verðlaunaðasti jeppi sögunnar er nú fáanlegur í fyrsta skipti í Plug-In-Hybrid útfærslu hlaðinn lúxusstaðalbúnaði og með enn meira rými en áður í farangursrými, sem rúmar nú auðveldlega fjögur golfsett auk farangurs. Glæsilegt nýtt útlit og einstök þægindi fyrir kröfuharða kaupendur sem þekkja gæði og vandaðan frágang. Framúrskarandi aksturseiginleikar með stillanlegri loftpúðafjöðrun hvort sem ekið er á malbiki eða á torfærum slóðum.
Verð á nýjum Jeep Grand Cherokee Summit Reserve 4xe Plug-In-Hybrid er 16.990.000 kr. með öllum búnaði.
Jeep Wrangler Rubicon – Goðsögnin tekur næsta skref
Ný útfærsla á hinum eina sanna Wrangler sem kemur hlaðin nýjungum. Nýr framendi með nýju grilli, nýtt mælaborð með 12” upplýsinga- og snertiskjá, þráðlausar tengingar við Apple og Android síma, rafdrifin framsæti, ný hönnun á sætum, fljótandi afturöxull, nýtt útlit á felgum og app sem forhitar, kannar stöðu á rafhlöðu, eldsneyti og staðsetningu, opnar og læsir og margt fleira.
Verð á nýjum Jeep Wrangler Rubicon 4xe Plug-In-Hybrid er 13.990.000 kr. með öllum búnaði.
Á sýningunni verða 35”, 37” og 40” breyttir Wrangler Rubicon sýndir, en breytingaverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á Jeep og RAM pallbílum.
5 ára ábyrgð er á öllum bílunum og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.
Umræður um þessa grein