- Hágæða Mercedes-Maybach SL er einn af vönduðustu – og dýrustu – „roadsterunum“ sem eru til sölu
fyrsta skipti í sögu sinni, mun háklassa Maybach-nafnið verða notað á Mercedes SL, sem býr til einn flottasta og dýrasta roadster fyrirtækisins frá upphafi. Nýi Mercedes-Maybach SL, sem sýndur var á Monterey bílavikunni í Kaliforníu, táknar hátind lúxus fyrir þýska vörumerkið og mun bætast við úrvalið sem raðframleiðsla ásamt Mercedes-Maybach S-Class, GLS og EQS jeppanum.
Eins og með alla Maybach er allt það flottasta í forgangi hvað varðar hönnun. Þetta byrjar með einstakri „tonneau“ hlíf og sérsniðnum fram- og afturstuðara með frjálslegri notkun á krómi til undirstrikunar. Auk bjarta þátta á neðri stuðarum, dreifara og útblástursúttökum, hefur Mercedes einnig sett það á framrúðuumhverfið og einstaka ræmu sem liggur upp vélarhlífina.
Grillið er líka einstakt og er með upplýsta útgáfu af dæmigerðri hönnun Maybach með lóðréttri línu. Þessu fylgja ný „Digital Light“ LED framljós sem eru með rósagulli að innan. Tveir valkostir af 21 tommu hönnun á felgum eru fáanlegir, með fjölarma eða íburðarmikilli fimm holu hönnun.
Maybach mun upphaflega setja SL á markað í tveimur samræmdum hönnunarþemum – rauðum og hvítum – og í báðum tilfellum er hægt að velja vélarhlífina í svartri málningu með Maybach lógóinu áprentað undir síðasta glæru málningarlagið. Hægt er að panta dúkþakið með svipuðum lógóáhrifum, með nokkrum möskvahlutum í kringum framhliðina sem einnig er með sama endurtekna mynstrinu.
Að innan er Maybach SL eina stranga tveggja sæta módelið í úrvalinu, þar sem aftursætum er fórnað fyrir hlífina. Restin af innri arkitektúr SL hefur þó ekki verið breytt í grundvallaratriðum, í staðinn eru það efnin og frágangurinn sem hefur fengið mikla aukningu í gæðum.
Þetta felur í sér blómahönnun á kristalhvítu nappa leðurinnréttingunni, auk víðtækrar notkunar á sama leðri á afturhlutum farþegarýmisins. Sætisbökin eru nú kláruð í galvaniseruðu silfri, og það eru miklu fleiri hápóleruð efni notuð í stjórntækjum innréttingarinnar.
Þrátt fyrir tengsl Maybach og V12 véla, lætur þessi SL sér þó nægja útgáfu af 4 lítra V8 með tvöföldum forþjöppum frá AMG. Hér í sömu forskrift og SL 63 með 577 hestöfl, er afl sent á öll fjögur hjólin með níu gíra sjálfskiptingu. Aflrásin og fjöðrunin hafa báðar einstaka stillingu, þó með áberandi stefnu í átt að þægindum og fágun í stað sportlegrar uppsetningar AMG.
Verðlagning og tímasetning afhendingar í Bretlandi hefur enn ekki verið staðfest, en búist við að verð verði nálægt eða jafnvel yfir 200.000 punda markinu (um það bil 35,9 milljónir ISK).
(Vefur Auto Express)
Umræður um þessa grein