Það hefur ekki farið framhjá neinum að engin sérstök veðurblíða hefur leikið við landsmenn það sem af er sumri. Við í Krúserklúbbnum tölum gjarnan um „rúntsumarið“ þar sem þetta er sá tími þar sem félagsmenn geta viðrað glæsilega kaggana á götum borgarinnar.
Krúser á Hörputorgi
Sólardagar hafa verið af skornum skammti og veðurguðirnir hafa hagað þeim þannig að þeir hafa fæstir lent á fimmtudögum, en þá eru einmitt aðal rúnt kvöldin hjá Krúser.
Við biðjum þó ekki um meira en að það hangi þurrt, þótt óneitanlega laði sólin að sér fleiri bíla og gesti.
Margir félagar geyma glæsifákana í geymslu yfir veturinn, en á vorin eru þeir teknir út og hleypt út á göturnar. Þá eykst litadýrð bílaflotans í borginni til muna, en margir eru þessir bílar í skærum og fallegum litum, sem sjást ekki á nýrri bílum. Krómið fær líka að njóta sín á þeim mörgum og nánast undantekningalaust vekja þeir undrun og gleði þegar þeir sjást í bænum.
Krúserklúbburinn er með öfluga starfsemi allt árið um kring, og er opið hús í félagsheimili Krúser að Höfðabakka 9, öll fimmtudagskvöld frá kl. 19-22. Þar hittast félagsmenn og spjalla yfir kaffibolla, og á sumrin mæta flestir á köggunum og planið og gatan á Höfðabakkanum fyllist, svo úr verður glæsileg bílasýning.
Allir eru velkomnir á Krúserkvöld og ekki skylda að vera meðlimur, eins er ekki skylda að eiga bíl í þessum flokki. Eina skilyrðið er að hafa gaman af bílum og að hitta skemmtilegt fólk.
Á sumrin er farinn rúntur niður í miðbæ Reykjavíkur ef vel viðrar og endað á Hörputorgi þar sem bílarnir eru til sýnis. Á Laugaveginum vekur halarófan af glæsilegum bílum óskipta athygli bæði heima- og ferðamanna, og símarnir fara á loft til að taka myndir og myndbönd, eins og stórstjörnur séu á ferð.
„Summer in the City“ þeir allra hörðustu láta ekki „smá“ rigningu stoppa sig í að rúnta!
Á Hörputorgi draga bílarnir til sín fjölda manns sem hefur gaman af því að skoða þá.
Á haustin og veturna færist starfið inn í félagsheimilið og þá eru meðal annars haldin vöfflukvöld og tónlistarviðburðir með reglulegu millibili.
Í félagsheimilinu er einnig pool borð sem er mjög vinsælt og alltaf glatt á hjalla í kringum það.
Glæsilegt og notalegt félagsheimili Krúser að Höfðabakka 9
Krúser tekur þátt í mörgum viðburðum, til dæmis er hópakstur á 17. Júní í Reykjavík og farið á bæjarhátíðir. Krúser tók þátt í Harley-Davidson deginum á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar 29. Júní.
Í sumar var haldinn sérstakur Mustang dagur í tilefni 60 ára afmælis, og nýafstaðinn er Krúserdagurinn 10. ágúst en þá var opið hús og bílasýning.
Fólk og bílar á Krúserkvöldi við félagsheimili Krúser að Höfðabakka 9
Rúnt sumrinu 2024 er ekki lokið, framundan eru mörg skemmtileg Krúserkvöld og við höldum áfram að hittast og hafa gaman.
Næsti viðburður sem Krúser tekur þátt í er hópakstur á setningarkvöldi bæjarhátíðar Í túninu heima í Mosfellsbæ.
Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með starfinu í Krúser á Facebook síðu klúbbsins.
Hluti af fastagestum við pool borðið í Krúser
Við látum nokkar myndir frá sumrinu fylgja með, þær fanga stemmninguna nokkuð vel, en best er auðvitað að upplifa hana beint í æð og við bjóðum alla velkomna til okkar í Krúser!
Texti: K. Linda Steingrímsdóttir
Myndir: Guðfinnur Eiríksson og K. Linda Steingrímsdóttir
Umræður um þessa grein