Í morgun var Model 3 hönnunarstúdóíið okkar uppfært og hefur einum af okkar háþróuðustu litum verið bætt við: Quicksilver.
Quicksilver er dínamískur litur og með áferð eins og fljótandi málmur. Hann er búinn til í háþróuðum málningarvélum og er hannaður til þess að varpa ljósi á fágaðar línur Model 3 í öllum veðuraðstæðum. Bæði björtustu fletir og dýpstu skuggar fá að njóta sín þar sem liturinn sveipar sig um boglínur bílsins.
Liturinn leit fyrst dagsins ljós seint árið 2022 þegar hann var gerður fáanlegur fyrir Model Y. Við erum mjög spennt að geta nú boðið upp á Quicksilver fyrir Model 3, og þar með auka framboð og sveigjanleika á Tesla bílum.
Hægt er að panta Model 3 strax í dag. Quicksilver útgáfan kostar frá 6.687.902 kr. Fyrstu afhendingar fara fram í Evrópu og Mið-austurlöndum seinna á þessum ársfjórðungi.
(fréttatilkynning frá Tesla Ísland)
Umræður um þessa grein