Það er gróska í fornbílageiranum á Austurlandi, Bílaklúbbur Austurlands hefur haldið úti öflug félagsstarfi undanfarin ár og félagsmenn hafa nú sett nýjan vef í loftið, www.bilaust.com.
Stjórn klúbbsins býður nú bílaáhugamönnum að skrá sig í klúbbinn, án endurgjalds fyrst um sinn.
Sýning á hernámsdaginn
„Á hernámsdaginn árið 2018 var haldin bílasýning í Fjarðabyggðarhöllini, fyrir tilstuðlan Gísla Birgis Gíslasonar, stofnanda klúbbsins, og voru þá sýnd um 50 tæki af öllum stærðum og gerðum. Nokkur tæki komu lengra frá, til dæmis frá Akureyri og Húsavík auk eins jeppa frá Reykjavík.”
Eftir sýninguna var svo boðið upp á hópakstur um Reyðarfjörð með viðkomu á Tærgesen þar sem boðið var upp á kaffi og spjall.
Gísli Birgir sá um allan undirbúning og frágang í höllini og má með sanni segja að þar hafi allt verið unnið með miklum sóma.
Árið 2019 var svo haldin önnur sýning í höllini fyrir tilstuðlan Gísla og fékk hann þá aðstoð frá þeim af svæðinu sem sýndu tæki sín, og var í kjölfarið ákveðið að stofna Bílaklúbb Austurlands og var hann stofnaður þann 2. desember árið 2019.
Gísli Birgir Gíslason, stofnandi Bílaklúbbs Austurlands.
Síðan hafa verið haldnar nokkarar sýningar, meðal annars á Egilsstöðum, Sjómannadaginn á Eskifirði, og er stefna klúbbsins að halda mun fleyri sýningar á komandi tímum.
Félagsgjöld í klúbbin eru engin, en með komandi tímum og auknu starfi munum við svo sannarlega reyna að óska eftir slíku til að efla starf klúbbsins.
Á heimasíðu klúbbsins má finna skráningarform þar sem áhugasamir geta skráð sig í klúbbinn, með komandi tímum munu meðlimir fá afsláttarkjör og fleyra sem eru í vinnslu.
Stjórn klúbbsins er skipuð sjö áhugamanneskjum um bíla og tæki og er markmið þeirra að efla klúbbinn sem drífandi félagsskap áhugamanna og kvenna um bíla og tæki á austurlandi og víðar.
Klúbburinn hefur staðið fyrir skúraheimsóknum til bílaáhugamanna í fjórðungnum þar sem við kynnumst flóru verkefna og fólkinu sem stendur á bakvið þau.
Stjórnarfólk á flest sérstaka bíla sem eru ýmist í uppgerð eða orðnir hinir glæsilegustu.
Við óskum Bílaklúbbi Austurlands til hamingju með nýja vefinn.
Myndir: Bílaklúbbur Austurlands.
Umræður um þessa grein