Laugardaginn 17. febrúar bjóða söluaðilar Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi til frumsýningar á nýrri kynslóð Toyota C-HR.
Þetta er önnur kynslóð bílsins sem fyrst var kynntur til sögunnar árið 2016.
Nýja kynslóðin er vel búin tækninýjungum frá Toyota meðal annars fimmtu kynslóð Hybridkerfisins, nýjustu útgáfu Toyota Safety Sense öryggiskerfinu og vönduðu margmiðlunarkerfi með 12,3” snertiskjá.
Á sýningunni á laugardag verður Hybridútgafa bílsins sýnd. Hann fæst framhjóladrifinn með 1.8 og 2.0 vél og einnig fjórhjóladrifinn með 2.0 vél.
Í næsta mánuði bætist enn við í C-HR línu Toyota þegar C-HR PHEV, tengiltvinnbíllinn kemur til landsins.
Opið er hjá söluaðilum Toyota á laugardag, 17. febrúar frá kl. 12 – 16.
Umræður um þessa grein