- Frumsýna Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Hekla blæs til vetrarsýningar á Laugaveginum, laugardaginn 27. janúar á milli klukkan 12 – 16.
Hekla kynnir nýjan Volkswagen Touareg sem er kraftmesti Plug-in Volkswagen frá upphafi og glæsilega viðbót í ID. fjölskylduna – ID.7, sem er hér á myndinni efst, sem valinn var bíll ársins í Þýskalandi í flokki Premium bíla (GCOTY).
Volkswagen Touareq eHybrid.
Á sýningunni verður lögð áhersla á rafmagnsbíla og mun starfsfólk Heklu kynna og veita ráðgjöf um allt það nýjasta í hleðslustöðvum en að auki verður fulltrúi frá ON á staðnum.
Hekla kynnir ný og betri verð á Skoda Enyaq, Volkswagen ID.4 og ID.5. Allt rafbílar sem fengið hafa frábærar viðtökur hér á landi. Þá verða sérkjör af sýningarbílum sem tilbúnir eru til afhendingar.
Að auki sýnir Hekla nýtt merki, GWM ORA sem eru vel búnir rafbílar á frábæru verði.
Hinn glæsilegi Audi Q8 e-tron verður einnig á sýningunni auk flaggskipsins e-tron GT en nokkrir bílar eru til á lager sem hægt er að fá afhenta á næstu dögum.
Gestum og gangandi verður boðið upp á ljúffengan ís frá Valdísi, pönnukökur og rjúkandi kaffi frá Sjöstrand.
„Hekla hefur verið leiðandi umboð í sölu á vistvænum bílum síðastliðinn áratug, það er okkur fagnaðarefni að geta boðið upp á þetta úrval rafmagnsbíla frá okkar framúrskarandi vörumerkjum.
Þetta er stórt ár fyrir Heklu því fyrirtækið heldur upp á 90 ára afmæli sitt á árinu. Það er því frábært að byrja árið á því að kynna tvo glæsilega bíla, Volkswagen ID.7 og Volkswagen Touareg eHybrid. Við kynnum einnig ný og spennandi verð á okkar helstu rafbílum, Volkswagen ID.4 4Motion og Skoda Enyaq 85X.
Þá verða sérvaldir sýningarbílar á sérstöku tilboðsverði sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Við hlökkum mikið til að fá fólk til okkar á laugardaginn, við lofum góðum móttökum og nýbökuðum pönnukökum“, segir Björn Víglundsson framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu.
Nýr Volkswagen ID.7
Volkswagen ID.7 hefur farið sigurför um heiminn og var meðal annars valinn bíll ársins í Þýskalandi í flokki premium bíla (GCOTY).
Allt að 612 km drægni (WLTP), 5 stjörnur í öryggisprófunum (EURONCAP), rafmagn og nudd í framsætum, 5 ára ábyrgð eða upp að 100.000 km (hvort sem kemur fyrr), 8 ára ábyrgð á aðalrafhlöðum eða upp að 160.000 km.
Nýr Volkswagen Touareg eHybrid
Nýr Touareg er kraftmesti Plug-In Volkswagen frá upphafi. 3.0 V6 381 eða 462 hestafla, 3,5 tonna dráttargeta, 5 ára ábyrgð eða upp að 100.000 km (hvort sem kemur fyrr), 8 ára ábyrgð á aðalrafhlöðum eða upp að 160.000 km.
Fréttatilkynning frá Heklu.
Umræður um þessa grein