- Skoda æðir inn á sportara markaðinn með öfluga rafmagnsbíla
- Byggir á Enyaq vRS að miklu leyti – nema minni
Áætluð koma bílsins stækkar rafbílaflota Skoda í sýningarsölum í Bretlandi seinni hluta árs 2024. Elroq verður boðinn með úrvali rafhlöðuvalkosta og eins og tveggja mótora aflrás.
Skoda hefur ekki gefið neitt upp um afköst bílsins en fyrstu vRS bílarnir af Enyaq gerð komu á markað á síðasta ári. Í samtali við vefinn Auto Express sagði Klaus Zellmer, forstjóri Skoda að viðbrögð við þessum bíl hafi „réttlætt“ hugmyndina um hraðari þróun í rafmagnsvalkostum og með bíl sem byggði á flottum hlaðbaki.
Svona gæti nýr Elroq ef til vill litið út. Mynd: Autocar.
„vRS er algjörlega hluti af framtíð okkar,” sagði Zellmer. „Ef þú horfir á það sem við höfum gert með Enyaq, þá er hann virklega vel heppnaður bíll í fremstu röð – án efa eftirsóttasti bíllinn okkar, með fjórhjóladrifi og um 300 hö. Verðið er hærra, en þú ert líka að fá meira fyrir peningana þína.“
„Fólk er ánægðara með bílana sína en nokkru sinni áður og já, það er tilbúið að eyða meiru,” bætti Zellmer við. „Sem þýðir aukna framlegð, frá okkar bæjardyrum séð. Þannig að ég held að við verðum að halda áfram á vRS-brautinni þegar við horfum áfram að rafmagnaðri framtíð.”
Þéttur bíll með topp aksturseiginleika
Zellmer lýsti aðdragandanum að þróun Elroq vRS, en í ljósi þess að bíllinn mun deila mörgum lykilþáttum með Enyaq II – þar á meðal MEB pallinum og sama hjólhafi og Enyaq, auk mótora, rafgeyma og jafnvel sumra boddíparta – er næsta öruggt að einhver aflmeiri útgáfa verður í boði. Framleiðslútgáfan verður að sjálfsögðu Elroq lúkkið en bíllinn mun bera sterkan keim af Enyaq vRS.
Með samnýtingu erum við að tala um svipaðar framleiðslulýsingar og fyrir Elroq vRS líka – ekki síst vegna þess að bíllinn mun fara í framleiðslu áður en fyrirhuguð uppfærslu VW Group á MEB grunninum, sem kallast MEB+ sem búist er við að verði innleiddur árið 2026.
Minni og léttari en Enyaq
Af ofangreindu má búast við að Elroq vRS sé með 77kWh rafhlöðu og tvo mótora sem framleiða samanlagt 295 hö. og 460 Nm tog. Hann ætti að geta náð 0-100 km. á um það bil sex sekúndum og af því að Elroq er talsvert minni en Enyaq ætti hann að hafa meiri drægni en hann þegar uppi er staðið.
Svona samnýting ætti að hraða þróun Elroq vRS, sem gerir markaðssetningu bílsins ef til vill mögulega innan árs frá kynningu grunngerðar bílsins. Það þýðir að bíllinn sjáist kannski á götu árið 2025.
Umræður um þessa grein