- T-Cross-sportjepplingur Volkswagen er að fá uppfærslu
Það er greinilega verið að uppfæra sportjeppalínu Volkswagen með uppfærðum T-Roc ásamt nýjum Tiguan og Touareg, en sá minnsti – T-Cross, er ekki skilinn eftir.
Við sáum T-Cross fyrst árið 2019 svo andlitslyfting árið 2023 virðist vera á réttum tíma.
Það er mikil samkeppni í flokki lítilla sportjeppa og crossover-bíla svo búast má við lagfæringum að utan og innan til að halda T-Cross í fremstu röð í sínum flokki.
Síðan hann kom á markað hafa keppinautar eins og Citroen C3 Aircross, Renault Captur og Nissan Juke allir fengið uppfærslur eða komið út sem alveg nýjar gerðir. Það er líka sífelld ógn innan Volkswagen Group frá Seat Arona og Skoda Kamiq.
Volkswagen hefur meira að segja sinn eigin hugsanlega keppinaut frá og með síðasta ári í formi nýja Taigo, bíll sem byggður er á T-Cross en hefur sitt eigið útlit með coupe-líkri þaklínu.
Þessar nýjustu njósnamyndir gefa okkur betri sýn á nýja T-Cross. Við fyrstu sýn lítur út fyrir að VW hafi sleppt öllum felulitum en ekki láta blekkjast, dulbúningurinn hefur bara verið hannaður til að láta bílinn líta út eins og útgáfa á lægra búnaðarstigi núverandi gerðar.
T-Cross mun fá endurgerðan framenda með nýju grilli og neðri stuðara. Ef myndirnar eru skoðaðar vandlega má sjá útlínur nýju stuðarahönnunarinnar. Hægt væri að aðlaga grillið sjálft þannig að það innihaldi dagljós í fullri breidd eins og sést á öðrum gerðum VW.
Afturhluti T-Cross mun fá svipaða meðferð með nýjum afturljósaklösum og uppfærðum afturstuðara.
Farþegarými T-Cross ætti ekki að breytast mikið. Gera má ráð fyrir að sjá 10,25 tommu stafræna skjáinn (eða „Digital Cockpit Pro”) fyrir ökumanninn koma sem staðalbúnað og í miðju mælaborðinu átta tommu snertiskjá með þráðlausri Apple CarPlay og Android Auto tengingu.
Þar sem T-Cross situr á sama MQB A0 grunni og Polo og Taigo ættum við ekki að búast við neinni rafvæðingu á aflrásum hans.
VW mun líklega halda áfram með 1,0 lítra túrbó bensín með 109 hestöfl og 1,5 lítra bensín með 148 hestafla sem tveir valkostir, eftir að hafa þegar tekið út 1,6 TDI dísilvalkostinn.
(byggt á grein á Auto Express)
Umræður um þessa grein