eDeliver 7 er þriðji rafknúni sendibíllinn frá kínverska fyrirtækinu
Maxus eDeliver 7 sem sýndur er í Shanghai um þessar munder er nýjasti rafknúni sendibíllinn frá kínverska vörumerkinu sem reis upp úr leifum breska bílaframleiðandans LDV. Þetta er meðalstór sendibíll sem er svipaður að lögun og stærð og Ford Transit Custom, en ólíkt þeirri gerð kemur hann eingöngu með rafmagni.
eDeliver 7 er búinn 88kWh rafhlöðu og drægni upp á 360 km. skv. WLTP staðlinum en minni 77kWh rafhlaða verður einnig í boði. Aflið kemur frá 201 hestafla rafmótor sem er með 330Nm tog, en drif er sent á framhjólin. Bíllinn er um 11 sek. 0-100 km/klst.
AC og DC hleðsla verður í boði, en þó að hámarks hleðsluhlutfall hafi ekki verið staðfest, heldur Maxus því fram að hægt sé að hlaða bílinn upp í 80 prósent á 43 mínútum.
Stærðirnar eru þrjár, L1H1 með 5.9 rúmmetra farmrými, L2H1 með lengra hjólhafi, með 6.7 rúmmetra plássi og L2H2 gerðin með háu þaki býður upp á 8.7 rúmmetra farmrými.
Í bílnum er hægt að stilla akstur með þremur stillingum Eco, Normal og Power til að hjálpa til við að stjórna rafhlöðugetu, en öryggisbúnaðurinn inniheldur blindpunktsskynjun, akreinaaðstoð, sjálfstæða neyðarhemlun, þreytuviðvörun ökumanns, bílastæðaskynjara að framan og aftan og 360 gráðu myndavélar.
Að innan er um þriggja sæta skipulag að ræða en 12,3 tommu snertiskjárinn frá Mifa 9 lúxus rafmagns MPV bílnum er staðalbúnaður í sendibílnum.
Auk þess að nota eigin hugbúnað Maxus er bíllinn einnig með Apple CarPlay og Android Auto.
Mark Barrett, forstjóri Harris Maxus, sagði við kynningu eDeliver 7: „Í dag kynnum við í fjórða skipti nýjan bíla á líftíma fyrirtækisins og sjöttu rafbílagerðina okkar á aðeins sjö árum. Á þeim tíma höfum við staðsett okkur sem leiðandi á markaði þegar kemur að rafknúnum ökutækjum og eDeliver 7 er að sjálfsögðu fulltrúi rafbílasviðs okkar.
„Rafmagnsbílarnir okkar hafa reynst vinsælir hjá fyrirtækjum í afhendingar-, lyfja- og matvöru- og smásölugeiranum, auk þess að vera númer eitt fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja skipta yfir í rafmagn.
Nýjasta viðbótin okkar er hugsuð fyrir þá sem þurfa meiri burðargetu en eDeliver 3, en þurfa kannski ekki alveg eins stóran bíl og eDeliver 9.
Verð á Maxus eDeliver 7 verður tilkynnt í júní, en búist við að það lendi einhvers staðar á milli núverandi eDeliver 3 og stærri eDeliver 9. Búist er við fyrstu afhendingu í ágúst.
Umræður um þessa grein