Jeep Wrangler Rubicon er alvöru jeppi

TEGUND: Jeep Wrangler Rubicon

Árgerð: 2019

Orkugjafi:

Sjálfskipting, pláss afturí, farangursgeymsla, fjórhjóladrif, útlit, ríkulega búinn staðalbúnaður.
Sutt seta í ökumannssæti, full lítill færanleiki í ökumannsæti fyrir leggjalanga, lítið „hanskahólf“, vindhljóð.
146
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Jeep Wrangler Rubicon er jeppi, það er bara einfaldlega þannig

Jeep Wrangler Rubicon hefur verið framleiddur í núverandi stíl frá 1986.  Óneitanlega er hann arfberi hins ódauðlega og eina sanna Jeep sem framleiddur var og notaður í seinni heimstyrjöldinni, gamla Willys jeppans.  2019 árgerðin er blanda af þessu öllu, nokkurskonar „retró“ útgáfa af hinum eina sanna Jeep nema hann er með öllum hugsanlegum þægindum sem jeppi gæti haft.

Jeep eins og hann var einfaldlega kallaður var hannaður í skugga seinni heimsstyrjaldarinnar. Tegund bílsins var hins vegar Willys Quad. Fyrstu jepparnir voru framleiddir 1940. Farartæki sem átti að komast hvert sem er og að hægt væri að gera nánast hvað sem er á þessum litla jeppa.  Þetta var hernaðartæki. Samhliða var framleiddur CJ 2A sem var Willys ætlaður til almenningsnota. Willys var framleiddur til ársins 1953 í svokallaðri CJ 3A útfærslu.

Frá árinu 2004 hefur Jeep framleitt Jeep Rubicon Unlimited sem er lengri útgáfan, semsagt fimm manna rúmgóð útgáfa sem jafnast á við til dæmis Jeep Cherokee og fleiri bíla í sama stærðarflokki.  Nýjasti Rubicon jeppinn tilheyrir fjórðu kynslóð bílsins.

Ísband, sem er umboðsaðili Jeep á Íslandi bauð okkur að reynsluaka þessum nýja og flotta jeppa núna í byrjun maí.  Bíllinn er nýlentur á landinu og hefur strax hlotið verðskuldaða athygli.  Til dæmis deildum við myndum úr reynsluakstrinum á Facebook og fengum vægast sagt jákvæðar undirtektir.  Töffara frasar eins og cool, nettur, þéttur og flottur hrundu inn á kommentakerfið með tilheyrandi tilkynningahljóðum.

Dísel og bensín

Reynsluakstursbílarnir voru annars vegar með 200 hestafla díselvél með 8 gíra sjálfskiptingu og hins vegar 270 hestafla bensínvél, einnig með 8 gíra sjálfskiptingu.  Báðir jepparnir komu á óvart, hvor á sinn máta.  Í stuttum bíltúr til Keflavíkur var eyðslan á díselbílnum varla meiri en á litlum fjölskyldubíl eða um 8.2 lítrar á hundraðið.  Bensínbíllinn eyddi að sjálfsögðu örlítð meira en þó ekki svo mikið um það bil 12 lítrum eins og við keyrðum hann.

Jeep Rubicon dísel er með 200 hestafla vél sem vinnur frábærlega.  Vélin togar vel og skiptingin er hin eina sanna sjálfskipting ef svo má að orði komast enda bílar frá þessum framleiðanda með sérlega vandaðar og endingargóðar vélar og sjálfskiptingar. Bíllinn skilar aflinu vel þegar stigið er þétt á aflgjöfina og ekkert sem bendir til annars en maður sé að aka bíl með aðeins minni bensínvél en þeirri sem er 270 hestafla.  Að sjálfsögðu er aflið minna eldsneytislega í dísel bílnum er rekstrarkostnaðuarinn líka aðeins annar.   Auðvitað var geggjað að gefa þessum 270 hestafla vel inn og finna hvernig maður þrýstist niður í sætið.

Frábært aðgengi og gott pláss
Hágæða hljómflutningstæki.

Leður og lúxus

Báðir jepparnir voru í lúxúsútgáfu (Limited), leðurpakki, innrétting, gírstangahnúður og stýri – allt mjög flott og virkar vel á mann í þessum jeppalega jeppa.  Ljósapakkinn innifelur LED –  þoku, fram, og afturljós og með ljósapakkanum kemur jeppinn með fjarlægðarskynjara að framan.  Tæknipakkinn er síðan blindhornaviðvörun sem virkar mjög vel þar sem bílinn er töluvert langur og maður má alveg passa sig að vita upp á hár hvort einhver er við hliðina á manni þegar skipt er um akrein, akreinavari, og lykillaust aðgengi með takka ræsingu.  Allt þetta kostar reyndar um 900 þús. kall.  Það skiptir kannski ekki miklu máli þegar grunnverð bílsins er 10.890 þús. krónur.

Wrangler er jeppi jeppanna.

Jeppi jeppanna

Jeep Rubicon er ekki bara einhver jeppi, hann er jeppi jeppanna.  Bílarnir koma mjög vel útbúnir og má telja upp staðalbúnaðinn á hálfu A4 blaði.  Rock Track fjórhjóladrif, þykir eitt það fullkomnasta í bílaiðnaðinum, Selec track millikassi og Tru Loc driflæsingar að framan og aftan.  Staðalbúnaður eru 17 tommu felgur með 32 tommu BF Goodrich dekkjum.  Reyndar gefa þau dekk pínu dekkjahljóð inní bílinn ásamt því að hann var eilítið svagur Reykjanesbrautinni.  En, þetta er jú jeppi.

Dísel og bensín – sama útlit.

Tölvutækni á uppleið

Amerískir bílar hafa ef til vill ekki verið að dansa neinn stríðsdans í tölvutækni á meðan evrópskir framleiðendur eru með tækni sem notuð er við flugvélasmíði í stjórntækjum sinna bíla.  Rubicon er vel búinn þannig lagað, með 8,4 tommu upplýsingaskjá, flottu viðmóti og upplausnin í skjánum er hin besta.  Kaninn kallar þetta þetta kerfi sitt U connect en það er með Apple Carplay og Google Android, raddstýringu, Bluetooth og Alpine hljómflutningstækjum sem virkuðu alveg sérstaklega vel.  Einnig er skynvæddur hraðastillir partur af aukabúnaði sem hægt er að kaupa með með bílnum en sem staðalbúnaður er hraðastillirinn bara venjulegur eins og hann hefur verið síðustu 50 árin eða svo. Afþreyingarpakkinn kostar í dag kr. 420 þús.  Hægt er að fá ýmsa aukahluti með bílnum eins og rafdrifna þaklúgu klæðningu í topp.  Standard bílinn kemur án klæðningar í lofti sem gerir bílinn skemmtilega grófan og passar við heildarupplifunina.

Það sérstaka við þennan frábæra jeppa er fjórhjóladrifið.  Á þeim bílum sem seldir eru í Evrópu, ólíkt Kanada og Bandaríkjunum er bíllinn búinn Selec track drifi.  Selec track fjórhjóladrifið er þannig búið að það kemur sjálfkrafa inn þegar þess er þörf. Þannig er auðvelt að aka bílnum í möl eða hálku án þess að til þvingunar komi milli fram og afturöxla. Jeppinn er síðan með læsingar á milli fram og afturöxla í bæði háu og lágu fjórhjóladrifi.  Búast má við að með þessu komist bílinn enn lengra en aðrir ef út í það er farið.

Flott mælaborð og tölvutæknin á uppleið.

Gott pláss

Pláss er með ágætum.  Framsætin mættu þó vera örlítið lengri og stillingin á sætissleðanum örlítið lengri fyrir leggjalanga ökumenn eins og mig.  Með því að velta stýrinu nánast alveg upp í mælaborðið var ég samt með smá bogna handleggi við að stýra bílnum.  Frábært pláss aftur í og auðvelt aðgengi.  Farangursgeymsla er 548 lítrar og mjög þægilegt að ganga um það.  Hlerinn opnast til hægri og síðan opnast afturrúðan upp.  

Mjög gott fótapláss afturí, ökumannssæti i öftustu stöðu.
Verð frá – sama verð á bæði dísel og bensín – 10.890 þús. krónur.

Hæð undir lægsta punkt: 25,2 cm.

Farangursrými 548 lítrar

Lengd, hæð, breidd: 4,88 1,85 1,89

Þyngd: 2080 kg.

Dráttargeta: 2370 kg.

Dísel eyðsla í blönduðum akstri: 7.7

Bensín eyðsla í blönduðum akstri: 10

Myndir og drónamyndir:  © Gunnlaugur Steinar Halldórsson

?

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar