Grjótharður vinnuþjarkur
Sjötta kynslóð Mitsubishi L200 hefur litið dagsins ljós. Nú um miðjan mánuðinn kynnti Hekla nýjan og endurbættan L200 en bíllinn hefur fengið nokkuð mikla yfirhalningu frá síðustu gerð. Í gegnum árin hefur þessi pallbíll verið vinsæll á markaðnum og með þeim nýjungum sem nú er boðið upp á gæti ég alveg trúað að kaupendahópurinn verði fjölbreyttari en áður.
Minna rúmtak
Það fyrsta sem maður tekur eftir ef bornar eru saman fyrri árgerð og sú nýjasta er að rúmtak vélar er minna en nýi bíllinn er með 2,2 lítra 16 ventla, 150 hestafla MIVEC dísel vél með forþjöppu á meðan forverinn var með 2,4 lítra dísel vél sem skilaði um 180 hestöflum.
Nýja vélin er að sjálfsögðu smíðuð í takt við nýjustu evrópureglugerðir hvað varðar útblástur en uppgefinn útblástur er skv. WLPT staðli um 206 gr. á kílómeter.
Vel búinn
Það verður að segjast að hinn nýi L200 er hrikalega vel búinn. Hann kemur með öllu því nýjasta í hjálpartækni og er þar á pari við vel búinn fólksbíl. Instyle gerðin kemur til dæmis með akreinavara, árekstrarvara með bremsuvakt sem búinn er laser radar sem skynjar ökutæki eða gangandi vegfarendur.
Blindhornaviðvörun, sjálfvirk háuljós, skynjari fyrir aðvífandi umferð aftan að bílnum gefa merki í mælaborð og blikk í hliðarspegla, 360° myndavél og brekkubremsa er meðal búnaðar sem í boði er.
Í samanburði við samkeppnina
Ef borinn saman við semkeppnina erum við að tala um Toyota Hilux, Ford Ranger og Nissan Navarra. Nýi L200 bíllinn er með svipaðan hestaflafjölda og Toyota Hilux en er mun ódýrari. Nissan Navarra býður upp á 190 hestafla vél með sjálfskiptingu en hefur ekki fengið búnaðar og útlits uppfærslu nýlega en verðin og enn skorar L200 betur í samkeppninni hvað verð varðar.
Hvernig er að keyra
Það er ljúft að aka nýjum L200, hann er mjúkur, sætin góð og halda vel við líkamann, nægt pláss báðu megin við fæturnar og maður situr vel í bílnum. Skiptingin er nokkuð nákvæm þó svo að það sé engin flugeldasýning þegar olíugjöfin er stigin í botn, enda ekki sportbíll á ferð. Maður finnur vel fyrir jeppaeiginleikum bílsins í akstri án þess að það trufli mann í bæjarakstrinum. L200 er með frekar stóran beygjuradíus og maður þarf að snúa stýrinu talsvert til að taka krappar beygjur eða þegar maður þurfti að snúa bílnum.
Uppfært fjórhjóladrif
Það sem einkennir nýjan L200 og gefur hönum töluverða sérstöðu á markaðnum er uppfært fjórhjóladrif sem er sídrif. Sídrifið gerir bílinn léttari í akstri og sérílagi í beygjum en síðan er hægt að setja bílinn í alvöru fjórhjóladrif þar sem hægt er að læsa drifinu og skipta aflinu jafnt á milli öxlanna. Mitsubishi, eins og svo margir bílaframleiðendur nútímans hafa sett inn forstilltar aksturstillingar sem þeir kalla Off Road Mode. Hægt er að velja um snjó, möl, drullu, sand eða grýtta yfirferð og þá samstillir tölvukerfi bílsins vélarafl, bremskukerfi og skiptingu (sjálfskiptingu) til að hámarka afköst hverju sinni.
Brekkubremsan er búnaður sem beitir sjálkrafa bremsum til að viðhalda hraða. Hægt er að nota þennan búnað á bæði sjálfskiptum og beinskiptum bíl upp að 20 km. hraða á klukkustund.
Mitsubhishi L200 er með sjálfstæða fjöðrun að framan eðn stífan öxul og blaðfjaðrir að aftan. L200 kemur með 75 lítra eldsneytistanki og hægt að fá fjölbreytt úrval aukahluta pantaða með bílnum. Þar ber helst að nefna pallhús, útdraganlegur skúffur, rennilok á pall, klæðningu á pall og dráttarbeisli svo eitthvað sé nefnt.
Góður kostur
Okkar mat er að nýr Mitsubishi L200 er vel búinn vinnuþjarkur sem hentar vel í hestamennskuna, ferðalögin, útgerðina eða vinnuna. Verðið er mjög samkeppnishæft og bílinn sérlega vel búinn. Innrétting er látlaus en það sem helst mætti kvarta yfir er allt hið harða plast í mælaborði og hurðaklæðningum. Armhvíla í framhurðum er óþægileg.
Velja má úr fjölda lita en Hekla býður bílinn í 9 litum og þremur gerðum.
Helstu mál:
Verð frá: 5.490.00 kr. Reynsluakstursbíll, Instyle 6.990.000 kr. (nóvember 2019)
Vél: 2.268 rms
Hestöfl: 150 við 3.500 sn
Newtonmetrar: 400 við 2.000 sn
CO2: 206 g/km
Eigin þyngd: 2.035 kg
L/B/H 5295/1815/1780 mm
Eyðsla bl ak: 7,8 l/100 km
Pallur – innanmál:
Lengd: 1520 mm
Breidd: 1470 mm
Hæð: 475 mm