Evrópufrumsýning á nýjum GMC pallbíl á Selfossi
3500H Denali Crew Cab með 6,6 lítra Duramax V8-túrbódísilvél
Stórir pallbílar eru meðal mest seldu bíla á Bandaríkjamarkaði, og þótt horft sé á allan markaðinn. Með breyttu neyslumynstri hér á landi hefur hlutfall pallbíla minnkað aðeins, og þá sérstaklega þessara stóru frá Bandaríkjunum, en þeir eiga samt sinn aðdáendahóp og marga trygga kaupendur.

„Fyrirtækið IB Ehf á Selfossi er meðal þeirra sem halda uppi merki bandarískra pallbíla á Íslandi og flytur inn marga af þeim stóru bandarísku pallbílum sem við sjáum hér í umferðinni og hefur gert í rúm 20 ár”.

Áhersla hefur verið lögð á þjónustu og ábyrgð og eiga helstu slithluti á lager fyrir pallbíla, þjónustuaðillar á Norðurlandi eru KS Sauðárkróki og Cobolt Akureyri ásamt nýjum þjónustuaðila á höfuðborgarsvæðinu, sem er Bíljöfur, en fáir hafa meiri reynslu við þjónustu Bandarískra bifreiða en þeir.
Evrópufrumsýning
Við litum við hjá Ingimar á dögunum og forvitnuðumst hvað væri helst á döfinni.

„Það er fyrst og fremst frumsýning hjá okkur um næstu helgi á splunkunýjum pallbíl frá GMC, 2020-árgerð af 3500H Denali Crew Cab með 6,6 lítra Duramax V8-túrbódísilvél. Þetta er í raun Evrópufrumsýning því þessi bíll hefur ekki sést áður í öðrum Evrópulöndum“, segir Ingimar og leiddi okkur að þessum stæðilega pallbíl.

Fjölhæf not
Strax við fyrstu sín er ljóst að þetta er pallbíll sem er hannaður fyrir fjölhæf not. Eða eins og þeir hjá GMC segja: „Hvort sem það er heima, í vinnunni eða í burtu frá þessu öllu, þá hefurðu miklar væntingar um hvað þungur pallbíll ætti að vera. Við hjá GMC leitumst við að uppfylla ekki aðeins þær væntingar – heldur settum einnig nýjan staðal um hvað þungaflutningar geta verið – með næstu kynslóð, árgerð 2020 GMC Sierra Heavy Duty“.
„Við settum nýja staðla fyrir snjalla hæfileika, djarfa hönnun og háþróaða tækni í hálfs tonns pallbílum með Sierra 1500 árgerð 2019,“ segir Jaclyn McQuaid, yfirverkfræðingur Sierra. „Okkur langaði til að gera það sama í stærri bílnum og samtímis auka styrk og afköst. Við vorum staðráðnir í að gera þennan pallbíl/ flutningabíl/dráttarbíl eins góðan og hægt væri fyrir okkar viðskiptavini“.



Kraftur í fyrirrúmi
Sierra hefur byggt upp orðspor fyrir ótrúlega frammistöðu, sérstaklega þegar kemur að stærri pallbílum með dísilvél, Fyrir árið 2020 heldur Sierra Denali Heavy Duty ekki aðeins þeirri hefð áfram – hún færir hana á ný stig að sögn GMC.
En látum hér staðar numið og lítum aðeins nánar á bílinn sjálfan. Til þess var farið í stuttan kynningarakstur um nágrenni Selfoss og strax á fyrstu metrunum kom berlega í ljós hversu vel hönnuðum bílins hefur tekist að sameina stærð og afl og láta samt frábæra aksturseiginleika njóta sín til fulls. Hér í eina tíð voru stórir amerískir pallbílar ekkert skemmtilegir í akstri. Í dag er þetta alls ekki til staðar! Strax og sest er undir stýri er ekkert síðra að aka þessum stóra „vörubíl“ en kraftmiklum og sportlegum fólksbíl.



Öflug vél
Sierra Heavy Duty 6,6 lítra Duramax Turbo-dísilvélin V8 skilar 445 hestöflum og 1230 Nm af togi. Við hönnun vélarinnar var þess gætt að þessi öfluga vél skili árangri með því að auka bæði kæligetu með stærri vatnskassa og viftu og bæta loftflæðikerfið.
Tvískipt inntakskerfi dregur þétt, kalt loft í gegnum bæði inntak á vélarhlíf og grillið að framan til að hámarka afköst.

Ný sjálfskipting
Kynning á þessum Sierra Heavy Duty markar tímamót hvað varðar gírskiptingu, með nýrri Allison® 10 gíra sjálfskiptingu – fyrsta Allison 10 gíra sjálfskiptingin sem boðið er upp á í stærri flokki pallbíla. Nýji 10 gíra gírkassinn veitir þéttara bil á milli gíra en áður, sem gerir vélinni kleift að starfa á besta aflsviðinu við allar aðstæður með mismunandi álagi.

Innbyggður aflhemill vélar
Duramax / Allison samsetningin er einnig með samþættum útblásturshemli vélarinnar, sem nýtir bakþrýsting vélarinnar og drifrás Sierra Denali Heavy Duty til að hjálpa við að stjórna hraða bílsins og eftirvagns þeagr dregið er úr hraða og dregur úr þörfinni á að nota aksturshemla í löngum, bröttum brekkum.

Útblásturshemillinn er einnig tengdur við skriðstillinn, sem gerir kleift að viðhalda stilltum hraða, jafnvel í hæðóttu landslagi.

Sterkur afturöxull
Afturöxullinn er með stærri og sterkari íhlutir en nokkru sinni fyrr til að bæði auka getur öxulþyngdar og skila í raun eins miklu togi til jarðar og mögulegt er. Þessi uppfærða drifrás felur í sér nýja, stærri, öflugri fram- og afturöxla, og gegnheilan 12 tommu drifkamb á 3500HD dísilbílnum. Að auki þarf Sierra 3500 Heavy Duty ekki að takmarka togið í fyrsta gír, sem gerir bílnum kleift að senda allan dráttargetu eftrivagns til hjóla frá byrjun.

Mikill tæknibúnaður
Það er nokkuð síðan sá sem þetta skrifar hefur ekið pallbíl af þessari stærð, og það var hrein upplifun að setjast undir stýrið og virða fyrir sér mælaborð og stjórntæki og reyna að gera sér grein fyrir þessu öllu í einni svipan.
Sierra Denali býður upp á fjölda háþróaðra aðgerða sem eru hannaðar til að auka stjórn og sjálfstraust þegar verið er að draga eftirvagna. Þá býður þessi Sierra Heavy Duty upp á ótrúlega sveigjanlegt myndavélarkerfi að utan með allt að 15 mismunandi útsýni – meira en nokkur annar samkeppnisbíll í sínum flokki að sögn GMC, og þar var mjög sérstakt að kveikja á þessu og fylgjast með þessu á stórum skjá á miðju mælaborðsins.
Þessi skjár, 8“ er tengdur upplýsinga- og afþreyingarkerfi bílsins ásamt baksýnismyndavél auk umhverfismyndavélakerfisins sem nefnt var hér að framan.

Geta án takmarkana
Stórir pallbílar, eða „vörubílar“ eins og þessi hafa oft orðspor fyrir að leggja áherslu á burðargetu á kostnað akstursgæðanna, sérstaklega þegar þeir eru tómir eða óhlaðnir. Ekki var það svo með þennan Sierra Denali. Hönnuðir bílsins voru staðráðnir í að bjóða upp á fullkomna blöndu af getu og þægindum, með háþróaðri yfirbyggingu, nýju einangruðu stýrishúsi og breiðari dekkjum, sem einangra enn frekar ökumann og farþega frá ójöfnum í yfirborði veganna. Sierra Heavy Duty notar einnig öfluga sjálfstæða fjöðrun að framan sem skilar burðargetu en dregur úr hristingi og bætir akstursþægindi, sérstaklega með eftirvagn í drætti. Aðgengilegir eiginleikar, þar á meðal stafrænt breytileg stýrishjálp, er einnig hönnuð til að bæta meðhöndlun og draga úr þreytu ökumanna.
Í þessum bíl voru starfsmenn IB búnir að fækka um eitt blað í afturfjöðrun og setja Fox dempara ásamt 35“BFG dekkjum til að auka mýktina í akstri og hún var svo vissulega til staðar þegar við ókum um mjög ósléttan slóða upp með Ölfusánni.

Þegar kemur að því að fara út af sléttum vegum, er Sierra Denali með mikla getu utan hefðbundinna vega án þess að fórna neinu. Til að takast á við óslétt landslag, er Sierra Denali með að minnsta kosti 25 sentímetra veghæð óbreyttur. Hallastýring eða „Hill Descent Control“ – sem nýtir ABS hemlunartæknina skilar mýkt í akstri niður ójafnt yfirborð í halla – er fáanlegt sem aukabúnaður, en tiltækt kerfi spólvarnar („Traction Select System“) hámarkar nýtingu á drifrás, stillingar stjórntækjanna og stillingar stöðugleikakerfis fyrir margs konar landslag og akstursskilyrði. Nýr tveggja gíra Autotrac millikassi með virkri fjórhjóladrifsstillingu er einnig fáanlegur, sem veitir óaðfinnanlega skiptingu á milli tveggja og fjórhjóladrifs miðað við aðstæður á vegum.
Sterkt útlit, sterk hönnun
Það þarf ekkert að misskilja að Sierra Denali er ekki neitt annað en GMC – og það þarf vissulega ekkert að misskilja að þetta er ekkert annað en stór pallbíll. Sérhver þáttur í útlitshönnun Sierra Denali undirstrikar þetta – sérstætt útlit framljósanna, áberandi vélarhlíf með stóru loftinntaki, sérstætt grillið og svo margt fleira – hefur greinilega verið vandlega hannað til að tákna gríðarlega möguleika.
Lítum til þess sem hönnuðir bílsins hafa að segja um útlitið: „Við notuðum hvert tækifæri til að koma sjónrænt á framfæri styrk og getu sem liggur undir yfirborðinu,“ segir Matt Noone, forstöðumaður útlitshönnunar GMC. „Hækkuð lína vélarloks, sterkar línur, sláandi framgrill – þessar vísbendingar veita þessum pallbíl ekki aðeins kröftuga en fágaða nærveru, heldur hjálpa þeim einnig að koma á framfæri styrk og afköstum sem hannaðir hafa verið og smíðaðir í sérhverjum Sierra Denali Heavy Duty“.

Öflugur ljósabúnaður
Sláandi sjónræn auðkenni Sierra Denali er augljós jafnt á degi sem nóttu. Ljósabúnaður er mikil og góður, veitir bæði góða lýsingu og undirstrikar jafnt útlitið. Ásamt GM-laga vörumerkis er C-laga há-styrkleika LED ljós bæði í aðalljósum og afturljósum, ásamt því að LED-hliðarljós eru innfeld í hjólbogana, nokkuð sem skapar bílnum sérstöðu.
Rúmgóður pallur
Virkni er jafn mikilvæg og form, sérstaklega þegar kemur að pallbílum. Denali er með pall sem er sérsniðinn fyrir Heavy Duty gerðir. Þessi pallur er með mikla burðargetu og er bæði breiðari og lengri en fyrri gerðir Sierra. Þessi bíll sem við erum að fjalla um hér í dag er með nýstárlegan afturhlera sem er hægt að nota á mismunandi vegu, þar á meðal sem þrep upp á pallinn og einnig er hægt að lækka hann að hluta þegar flytja þarf langa hluti. hleðslutæki fyrir langa hluti.
Rúmgott innanrými – góð aðstaða ökumanns
Það er nánast ævintýri að setjast undir stýri í GMC Denali. Við ökumanninum blasir mælaborð sem veitir aragrúa af upplýsingum á mjög auðskilinn og sýnilegan hátt. Gírskiptingin er á mjög svo „amerískan“ hátt með stóru handfangi hægra megin við stýrið. Drifbúnaði bílsins er stjórnað með sérstöku hnappaborði vinstra megin við stýrið á aðgengilegum stað.
Til aukinna þæginda – öryggis – er helstu upplýsingum um akstur bílsins varpað upp á framrúðuna í sjónlínu ökumanns fram á veginn.

Plássið í þessum bíl er yfirdrifið, jafn í framsætum sem aftursætum. Aðgengi er ágætt, sérstaklega með góðum stigbrettum á hliðum. Á hlið pallsins að utan, rétt fyrir framan hjólbogana er sérstakt þrep til að komast að fremri hluta pallsins.
Liprari en við mátti búast
Þar sem ekki var um raunverulegan reynsluakstur að ræða er ekki svo gott að dæma um aksturseiginleika Denali, en það kom verulega á óvart hversu vel hann fer með ökumann og farþega í venjulegum akstri.
Það er engum blöðum um það að fletta að Denali er „stór“ bíll, 6.352 mm á lengd (með staðalgerð á palli), breiddin er 2.079 mm og hjólhafið er 3.795 mm. En um leið og maður byrjar að aka þessum bíl þá er eins og hann „skreppi saman“, hann er það lipur í akstri og góð yfirsýn fram á veginn að stærðin hættir að “vera mál“!

Mikið afl, góð svörun og til þess að gera mýkt í fjöðrun gera sitt líka til að draga úr stærðaráhrifunum.
Niðurstaða
Þetta er öflugur bíll, sem hentar sérlega vel þeim sem þurfa á bíl til að draga þunga eftirvagna, til dæmis hestakerrur af stærri gerðinni, eða fyrir verktaka sem þurfa bíl með öfluga dráttargetu og fjölþætta eiginleika.
Þetta er ekki bíllinn til að skreppa á í Kringluna, en nýtist án efa vel við allar aðrar aðstæður.