The National Corvette Museum opnar aftur
Í dag var safnið opnað á ný eftir gagngerar endurbætur. Nýir sýningargripir og þemasýniningin “The Vision Realized” 60 year of Mid_Engine Corvette Design var opnuð með pompi og prakt. Á safninu má nú sjá Covette Indy og P-987 GT ásamt nokkrum sögulegum Chevrolettum.
Safnið hefur verið lokað í hartnær 12 vikur vegna Covid-19 en hefur nú opnaða á ný. Stjórnendur og starfsmenn safnsins hafa staðið í ströngu á meðan á faraldrinum stóð og í kjölfarið bætast við tveir nýir sýningarsalir og þá var þemasýningin einnig opnuð.
Opnunin eftir þessa endurnýjun safnsins er tileinkuð minningu E.Pierce Marshall (moldrík kappaksturshetja í Bandaríkjunum). Uppfærslan miðar einnig að því að gera söguna aðgengilegri og með gagnvirkum snertiskjám, mynböndum sýndum í þar til gerðum básum er hægt að upplifa kappakstur í nýjum hæðum.
Mótorsport hluti safnsins er tileinkaður mótorsporti tengdu Corvettum og þá sérstaklega CJ R bíl Pierce E. Marshall jr.
Einn er sá bíll sem öðrum fremur á sér skemmtilega sögu en það er 1954 árgerð af Corvettu sem verslunareigandi keypti nýjan. Hann ók bílnum um fjögurra ára tímabil en ákvað svo að leggja honum. Verslunareigandinn sem hét Richard Sampson ákvað því að múra bílinn inn í verslunarhúsnæði sitt og varðveita þannig bílinn um ár og öld. Sampson gaf út að bíllinn skyldi vera innmúraður til ársins 2000.
Þó svo að hann hafi breytt þessum ásetningi sínum var bíllinn múraður inn í nokkursskonar „bílskúr“ inní í verslunarbyggingunni í 27 ár.
Eftir að bíllinn var losaður út með því að losa stein fyrir stein úr byrginu var hann afhentur dóttur Sampson sem hafði hann í stofunni hjá sér í tæp 10 ár. Segi svo enginn að mönnum þyki ekki vænt um ökutækin sín.
Bíll þessi er nú kjörgripur á hinu nýendurgerða Corvettu safni sem staðsett er í Kentucky fylki stutt frá Nashville í Bandaríkjunum.
Umræður um þessa grein