Mikill áhugi á nýjum rafbílum
Þrjú bílaumboð frumsýndu nýja rafbíla í dag
Það fer ekki á milli mála að áhugi bílakaupenda á nýjum rafbílum hefur aukist. Þrjú bílaumboð frumsýndu nýja rafbíla í dag og á öllum stöðunum var fjöldi gesta þrátt fyrir ekki besta útivistarveður í heimi.
Í Mosfellsbænum frumsýndi Ísband nýja Fiat 500e – í nýrri útgáfu með 3 hurðum, hjá BL við Sævarhöfðann var hægt að skoða MG Marvel R Electric, rúmgóðan sportjeppa og í Skeifunni sýndi Vatt, dótturfyrirtæki Suzuki bíla nýjan Aiways U5, rafmagnaðan og vel búinn sportjeppa frá Kína.
ÍSBAND umboðsaðili FIAT frumsýndi fyrsta 500e rafmagnsbílinn og jafnframt fyrsta 500 bílinn með 3+1 hurðum í dag, laugardaginn 6. nóvember.
Að sögn Sigurðar Kr. Björnssonar markaðstjóra Ísband, fengu þeir fjóra bíla núna, og sá fyrsti seldist strax við opnun sýningarinnar. Fleir bílar fylgja síðan í kjölfarið. Það var að sjá að það var mikill áhugi á bílnum á sýningunni og kominn tími til að Fiat verði fyrir alvöru sjáanlegur á markaði hér.
500e er ítölsk hönnun þar sem mikið er lagt upp úr sérstöðu, fallegu útliti innan sem utan og notagildi.
Fyrstu 500e bílarnir koma í 9 litum og útfærslu sem kallast „La Prima“ sem er hlaðin aukabúnaði eins og 3+1 hurðum (3+1 hurð er afturhurð farþegamegin sem auðveldar aðgengi að aftursætum), leðursætum, leðurstýri, hita í sætum, 10,25” útvarpsskjá með leiðsögukerfi, þráðlausri símahleðslu, sjálfvirkri miðstöð með loftkælingu, bakkmyndavél, þráðlausu Apple/Android Carplay, 85KW hraðhleðslu, 17” álfelgum, 360? fjarlægðaskynjurum, Led ljósum, lykillausu aðgengi og ræsingu, glerþaki, fjarlægðastilltum hraðastilli með hraðaskiltalesara o.mfl.
BL frumsýnir MG Marvel R Electric
BL við Sævarhöfðann frumsýndi í dag rúmgóðan og framúrstefnulegan rafknúinn sportjeppa, MG Marvel R Electric.
Að sögn sölumanna fengu þeir nokkra bíla núna strax, þrátt fyrir að það ríki almennt seinangangur í afhendingu nýrra bíla á heimsvísu, og fyrstu bílarnir verða afhentir nýjum kaupendum strax eftir gelgina.
MG Marvel R Electric verður til að byrja með fáanlegur í tveimur útfærslum; Luxury 2WD sem hefur rúmlega 400 km drægni, og Performance 4WD sem hefur um 370 km drægni.
MG Marvel R Electric vel búinn og með flottri innréttingu og miklum staðalbúnaði fyrir þægindi og öryggi ökumanns og farþega. 19“ álfelgur og flott útlit.
Bíllinn er þessari útgáfu með288 hestöfl, drægni rafhlöðunnar er um 370 km og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 4,9 sekúndur – og togið er um 665 Nm.
Í eins drifs útgáfu er MG Marvel R Electric 2WD með tvo rafmótora að aftan sem eru 180 hestöfl og með 410 Nm tog. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 7,9 sekúndur.
Bíllinn hefur um 402 km drægni og hámarkshraði MG Marvel R Electric óháð útfærslum er takmarkaður við 200 km/klst.
Vatt og Suzuki í Skeifunni frumsýndu í dag nýjan Aiways U5, rafbíl frá Kína.
Aiways er nýtt bílamerki á Íslandi en U5 er fyrsti bíll þessa merkis sem nýkomið er á markað í Evrópu.
Að sögn Úlfars Hinrikssonar framkvæmdastjóra Suzuki, hafa bílanir strax vakið mikla athygli, enda sérlega vel búnir á góðu verði.
Og það er ekki hægt að segja annað að útlit og frágangur vekur athygli hvert sem litið er á bílunum.
Drægnin á rafmagninu á Plus-gerðinni er um 410 km á fullri hleðslu en 400 km á Premium útfærslunni. Mikið af öryggisbúnaði er í Aiways sem staðalbúnaður, eins og blindhornsaðvörun eða 360° myndavél.
Í Premium gerðinni er stór sóllúga, leðurinnrétting, ásamt rafstillanlegum sætum. Gólfið í farangursrýminu er flatt og rúmar 1.555 lítra af farangri.
Verðið er frá 5.190.000 kr. og 5.690.000 kr. fyrir Premium útfærsluna.
Umræður um þessa grein