KIA á Íslandi frumsýnir XCeed
Núna á laugardaginn, 2. nóvember, mun KIA á Íslandi frumsýna nýjann XCeed á milli klukkan 12 og 16 í húnæði KIA að Krókhálsi 13 í Reykjavík.
XCeed er sportlegur borgarjepplingur, hlaðinn fyrsta flokks tæknibúnaði frá Kia. Kia XCeed verður fyrst fáanlegur með sparneytinni bensínvél en er einnig væntanlegur í Plug-in Hybrid útfærslu með áætlaðri 58 km rafdrægni.
KIA XCeed var frumsýndur í sumar og hefur hlotið góðar viðtökur um víðann heim. Opnað verður einnig fyrir forpantanir á XCeed Plug-in Hybrid á laugardaginn samkvæmt KIA á Íslandi.
Umræður um þessa grein