Er þetta grunnur að nýjum rafdrifnum Honda HRV?
- Honda e: frumgerð sportjeppa opinberuð á sýningunni í Shanghai
- Sá fyrsti af 10 rafknúnum bílum sem Honda hefur skipulagt næstu fimm árin
Honda hefur opinberað nýjan hugmyndabíl á bílasýningunni í Shanghai sem nú er í gangi. Nafnið er fremur ólýsandi og undarlegt, Honda sportjeppi e:prototype eða „frumgerð“, en lýsir nákvæmlega hvað það er – rafknúinn sportjeppi.
Þar sem Honda e rafbíllinn hefur fengið góða dóma var það eiginlega sjálfsagt að Honda myndi fylgja eftir með svipuðum hugmyndabíl í „crossover“-stíl.
Það er kallað sportjeppi, en í Asíu nær hugtakið bæði yfir „crossover“-bíla og jeppa byggða á stigagrind (ef þú ert að tala sérstaklega um þá síðarnefndu, myndirðu segja 4×4 eða 4WD). Og já, sportjeppar eru að taka yfir markaðinn í Kína líka.
10 rafbílar á leiðinni
Meira um vert, Honda hefur stór áform um rafvæðingu í Kína. Fyrirtækið segir að þessi sýningarbíll sé fyrsti af 10 rafknúnum ökutækjum sem það ætlar að kynna þar á næstu fimm árum.
Honda segir lítið um nánari tæknilýsingar, en það er þróun á sportjeppanum Honda e:concept eða hugmyndinni sem sýnd var í Peking árið 2020.
Ólíkt forveranum er þessi bíll nú með fjórar hurðir og það sem virðist vera raunverulegt hleðslutengi á bak við Hondamerkið á framendanum.
Stóru loftinntökin að framan eru horfin, í staðinn fyrir hreint yfirborð sem er með par af (líklega ekki á bílnum sem fer í framleiðslu) LED ljósastikum neðst. Þegar á heildina er litið vekur útlitið upp hugmynd um örlítið meira aðlaðandi HR-V, með andstæðu þaki og meira kantaðar hliðar.
Frumgerðin er búin þriðju kynslóð af Honda Connect kerfinu. Sagt er að það sé mjög háð raddgreiningu og geti stjórnað snjöllum heimilistækjum, gert kleift að versla á netinu við akstur (!), nálgast aðgerðir ökutækja í gegnum snjallsíma og uppfæra hugbúnaðinn þráðlaust.
Það uppfærir núverandi leiðsögu- og upplýsingakerfi einnig og mun byrja að sjást í bílum Honda síðar á þessu ári.
Þessi sportjeppi e:prototype lítur út fyrir að vera tilbúinn í framleiðslu og það kæmi ekki á óvart að sjá aksturshæfa útgáfu fljótlega.
(byggt á fréttum frá bílasýningunni í Shanghai, Autocar og Autoblog)
Umræður um þessa grein