Blað verður brotið í bílasögunni þriðjudaginn 1. júní 2021
Við höfum fjallað nokkuð mikið um rafdrifna ofursportbílinn Rimac C Two. Hann verður formlega kynntur í endanlegri útgáfu og fær sitt endanlega nafn þriðjudaginn 1.júní kl 13.00 á Mið-Evrópu sumartíma sem er kl 11.00 á Íslandi. Niðurtalningin er hafin og er hér.
Ég vona að ég sé ekki einn um að vera spenntur fyrir þessum bíl á Íslandi. En þessi bíll mun fara á spjöld sögunnar eða a.m.k. bílasögunnar það er klárt.
Ekki meira um það að sinni en hér kemur líklega síðasta myndbandið frá Rimac Automobili varðandi þetta rafmagnaða tækniundur áður en það verður afhjúpað í sinni endanlegu mynd.
Umræður um þessa grein