XFC Concept kassalaga hugmyndabíll frá Mitsubishi
Kemur fyrst á markað í Suðaustur-Asíu, en væntanlega seinna á heimsvísu
Mitsubishi dró sig næstum alveg í hlé á Evrópumarkaði, tók meðal annars út vinsælasta tengitvinnbílinn sinn Mitsubishi Outlander PHEV og reyndi að fylla í skarðið með Eclipse Cross. En nýlega tilkynntu þeir að fyrirtækið stefni aftur inn á Evrópumarkað, þannig að við eigum eftir að sjá hvernig það verður.
Viðvera Mitsubishi hefur minnkað í Bandaríkjunum, en nærvera fyrirtækisins er sterkari nær heimamarkaðinum í Asíu, þar sem það býður upp á nokkra bíla sem við fáum aldrei að sjá hér eða í nágrannalöndunum. Nýjasti hugmyndabíllinn frá Mitsubishi gefur vísbendingu um framtíðarsýn þeirra á lítinn vinnubíl með skemmtilegri hönnun og framúrstefnulegri innréttingu.
XFC Concept er lítill bíll með „jeppaútliti“ sem Mitsubishi kallar „vel hentugan fyrir spennandi lífsstíl“. Hann verður formlega frumsýndur á bílasýningunni í Víetnam síðar í þessum mánuði og er ætlaður fyrir markaðinn í Suðaustur-Asíu, þó fyrirtækið segist vilja koma fram með bílinn á heimsvísu síðar.
Hönnun hugmyndabílsins er frávik hjá Mitsubishi. Kassalaga línur og einstakur ljósabúnaður er áberandi í hönnun á XFC og undrstrikað enn frekar á afturendanum.
Hugmyndabílar komast sjaldan óbreyttir í framleiðslu, svo Mitsubishi mun líklega breyta innréttingu XFC áður en hann fer í framleiðslu. Farþegarýmið virðist bjóða upp á blöndu af efnum og stórum gluggum. Mitsubishi segist vera með leiðandi innanrými í þessum flokki og bendir á að áhersla hafi verið lögð á að gera ökutækið eins þægilegt og hægt er á grófum vegum.
Flóð eru vandamál á heimasvæði XFC, svo Mitsubishi hannaði bílinn með mikla veghæð og fjórar akstursstillingar. Ökumenn geta valið á milli venjulegrar stillingar, aksturs í bleytu, möl- og leðju. Mitsubishi segist hafa þróað nýju stillinguna fyrir akstur í vatni með Suðaustur-Asíulönd í huga.
Mitsubishi mun setja XFC á markað árið 2023 og segir að rafknúið afbrigði sé á leiðinni. Þó hann sé enn á hugmyndastigi ætlar bílaframleiðandinn að jeppinn verði kjarnamódel fyrir vörumerkið á alþjóðavettvangi, ásamt bílum eins og hinum vinsæla fjölnotabíl Xpander MPV. Sem selst aðallega í Suðaustur-Asíu.
Umræður um þessa grein