VW stefnir að því að afhenda 100.000 ID4 „crossover“ á þessu ári
Nýju rafbílarnir frá VW vekja mikla athygli þessa dagana. ID3 er þegar kominn á markað hér á landi, og einn ID4 er þegar kominn til sýnis hjá Heklu.
ID4 er álitlegur bíll og meira að segja leigubifreiðastjórar hér á landi eru byrjaðir að velta því fyrir sér að skipta yfir í þessa gerð – og þar með að nota bara rafmagnið til að flytja sína farþega, enda er bíllinn sagður komast yfir 500 kílómetra á rafhleðslunni.
Að sögn Gunnars Smára Eggertssonar Claessen,vörustjóra hjá Heklu er meiningin að hefja afhendingar á VW ID.4 hér á landi um mánaðarmótin mars/apríl.
Ætla að framleiða og afhenda 100.000 bíla á árinu
Samkvæmt frétt frá Automobilwoche ætlar Volkswagen-vörumerkið að afhenda meira en 100.000 ID4 rafbíla á þessu ári, tveir þriðju bílanna eru ætlaðar til Evrópu og afgangurinn fer til Bandaríkjanna og Kína.
ID4 markar upphaf alþjóðlegrar útfærslu á MEB rafmagnsgrunni VW Group. Þetta er annar bíllinn sem smíðaður er á grunninum á eftir ID3 sem fór í sölu í Evrópu í september.
Sala ID4 hefst í Evrópu og Kína í mars. Afhendingar til Bandaríkjanna munu fylgja um mitt ár.
„ID4 mun vekja enn meiri áhuga fólks á rafrænni hreyfingu og þar með veita sókn á rafbílamarkaðnum aukinn skriðþunga,“ sagði Klaus Zellmer, sölustjóri vörumerkis VW. „Við vonumst til að afhenda viðskiptavinum vel yfir 100.000 ID4-bíla á þessu ári einu,“ sagði hann í yfirlýsingu.
VW hefur þegar fengið 17.000 pantanir á ID4 til þessa, sagði Zellmer.
Gert er ráð fyrir að ID4 verði aðalsölubíllinn fyrir línuna af rafhlöðuknúnum bílum VW vegna þess að hann miðar á sívaxandi markaðshlutdeild „crossover“ bíla af svipaðri stærð.
Í Þýskalandi byrjar ID4 verð á 38.450 evrum (5.948.000 ISK). Crossover er í boði með 52 kílówattklukkustunda rafhlöðu sem gefur allt að 348 km samkvæmt WLTP prófun og 77 kílówattklukkustunda rafhlaðan gefur allt að 522 km svið.
Upphaflega verður ID4 fluttur út til Bandaríkjanna frá verksmiðju VW í Zwickau í Þýskalandi, þar sem ID3 er einnig smíðaður. Framleiðsla hefst í verksmiðju VW í Chattanooga í Bandaríkjunum árið 2022. Í Kína er ID4 selt í tveimur afbrigðum, ID4 Crozz og ID4 X, smíðaðir í verksmiðjum í Anting og Foshan.
Afhendingum í Bandaríkjunum hefur seinkað þar sem VW hefur forgang á mörkuðum í Evrópu.
Öflugri gerð á leiðinni
VW ætlar einnig að setja á markað öflugt afbrigði af ID4 sem verður með sportlegri hönnun og aldrifi, sem kallast ID4 GTX.
VW vill ná 500.000 ID4 árlegri sölu árið 2025, sem er þriðjungur af væntanlegri framleiðslu ID-fjölskyldunnar, sagði Ralf Brandstaetter, forstjóri VW-vörumerkisins, við fréttamenn þegar „crossover“-bíllinn var kynntur í september.
Umræður um þessa grein