VW kynnir rafdrifið flaggskip sem sýnir fjögurra hurða „fastback“
- Framleiðsluútgáfan mun koma með mjög sjálfvirkan akstur á markaðinn
Bílaframleiðendum finnst greinilega mjög gaman í „feluleik“ – þetta sinn er það Volkswagen sem var að kynna fyrstu hönnunarskissuna af nýja Trinity flaggskipinu, rafknúnum fólksbíl, gerð sem Volkswagen heldur fram að muni setja ný viðmið hvað varðar aksturssvið, hleðsluhraða og sjálfvirkan akstur.
Skuggamyndin gefur til kynna fjögurra hurða „fastback“ sem gæti verið fyrir neðan Aero, meðalstóra rafknúna fólksbílinn, sem er áætlað að komi á markað árið 2023.
„Trinity eða „Þrenningin“ er kristöllunarpunktur fyrir „ACCELERATE“ stefnu okkar, merkisbera og draumabíll hugbúnaðar okkar“, sagði Ralf Brandstaetter, forstjóri VW-vörumerkisins.
VW segir að framleiðslan Trinity muni gegna mikilvægu hlutverki við að koma mjög sjálfvirkum akstri á fjöldamarkaðinn.
Fyrirhugað að hefja fjöldaframleiðslu árið 2026 og þá verður Trinity tæknilega tilbúin fyrir stig 4 sjálfkeyrsluhugbúnaðar, sem þýðir að ökumaðurinn getur látið tölvuna um borð að framkvæma allar aðgerðir við aksturinn.
Brandstaetter tilkynnti um flaggskipið, nýja rafbíl, í janúar og sagði vinnuheitið „Project Trinity“ tákna markmið VW um að ná þremur stökkum í nýsköpun.
Rafbíllinn mun byggjast á nýjum grunni rafbíla sem einbeitir sér að gervigreind og stafrænni gerð. Stjórnendur VW eru þessa dagana að vinna tækniupplýsingar fyrir ökutækið.
Framleiðslan Trinity verður studd af nýjum „Scalable Systems-grunni“ VW og bíllinn verður smíðaður í verksmiðju bílaframleiðandans í Wolfsburg í Þýskalandi.
Stjórnendur segja að þetta verði næsta kynslóð rafmagnsbifreiðar í mikilli rúmmáli, í kjölfar MEB grunnsins sem liggur til grundvallar ID3 hlaðbaknum, sem hleypt var af stokkunum í Evrópu í fyrra, og ID4 crossover, sem er verið að koma á markað í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína á þessu ári.
„Þetta verður fyrsta gerðin sem situr á nýjum grunni, sem mun þróa áfram það sem við höfum í dag með MEB-grunninu“, sagði Thomas Ulbrich, yfirmaður vörumerkjaþróunar hjá VW. „Auðvitað verður því svo haldið áfram fyrir allan hópinn til notkunar með öðrum vörum.“
VW sagði að framtíðar bílgerðir eins og Trinity verði framleiddar með töluvert færri afbrigðum og vélbúnaðurinn verði að mestu staðlaður til að draga úr flækjum í framleiðslu.
Project Trinity er jafngildi VW vörumerkisins og Artemis áætlun Audi. Verkefnið er að þróa þriggja sætaraða, sjö sæta rafmagns flaggskip, með kóðanafninu „Landjet“, fyrir Audi, Porsche og Bentley.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein