VW e-Up aftur í sölu
- VW ætlar að hefja sölu á e-Up rafknúna smábílnum að nýju þar sem það er eftirspurn eftir rafbílum á viðráðanlegu verði
- VW vill bjóða lítinn rafbíl á viðráðanlegu verði til að brúa bilið þar til framleiðslugerð ID Life fer á markað
BERLIN – Volkswagen ætlar að hefja sölu á rafhlöðuknúnu útgáfunni af Up smábílnum sínum að nýju til að mæta vaxandi eftirspurn eftir ódýrum rafbílum.
VW hætti að selja e-Up árið 2020 þegar hvatar stjórnvalda til að hvetja til rafbílakaupa olli aukinni eftirspurn. Gerðin var ekki hönnuð fyrir mikið magn og að selja bílinn með afslætti var ekki arðbært, samkvæmt þýskum blöðum.
En söluárangur lítilla rafbíla eins og Renault Zoe og Dacia Spring sýnir að það er eftirspurn á markaði eftir ódýrum rafbílum.

„Við höfðum tekið e-Up tímabundið af markaði árið 2020 vegna þess að afhendingartími hafði lengst verulega vegna mikillar eftirspurnar,“ sagði VW í yfirlýsingu sem send var í tölvupósti til þýska upplýsingatæknifréttavefsins Golem.
„Nú hefur verið ákveðið að taka e-Up aftur inn í pöntunarkerfið.“
Samkvæmt skýrslu sem birt var í Automotive News Europe systurútgáfunni Automobilwoche eru fyrstu söluaðilarnir þegar að setja upp lista fyrir væntanlega kaupendur e-Up.

Rafbílaleigufyrirtækið Nextmove sagði að e-Up í „Style Plus“ útgáfunni sé að fara að snúa aftur með listaverði upp á um 26.500 evrur (3,87 milljónir ISK) og drægni upp á um 250 km.
Lokaverð viðskiptavina yrði um 17.000 evrur (2,48 milljónir ISK) eftir ívilnanir frá stjórnvöldum í Þýskalandi.
„Framleiðslan verður „epísk“ og hröð viðbrögð mikilvæg,“ skrifaði Nextmove á Twitter.
Með e-Up gæti VW brúað bilið í rafbílaframboði sínu þar til ný grunngerð bíls VW sem aðeins notar rafhlöður fer í sölu árið 2025.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein