Þriðja kynslóð Volkswagen Touareg 2023 sést í prófunum – er að fá fínlegar breytngar og meiri tækni
Margir bílaframleiðendur markaðssetja bíla sína þannig að þeir eigi að duga á markaði í ákveðinn árafjölda þar til að ný gerð er frumsýnd, en grípa samt til þess að koma með „uppfærslu“ með minni háttar breytingum á miðjum „líftíma“ gerðarinnar.
Nákvæmlega þetta er Volkswagen að gera með Touareq og njósnaljósmyndarar hafa náð myndum af uppfærða stóra jeppanum í prófunum. Núverandi bíll kom á markað árið 2018 og hefur staðið frammi fyrir fjölmörgum keppinautum; allt frá Range Rover til ódýrari Hyundai Santa Fe.

Samt er þetta augljóst mál að um þróun er að ræða en ekki byltingu fyrir stóra VW að sögn Auto Express, því eins og þessar myndir sýna hefur ytri hönnun Touareg lítið breyst frá núverandi bíl. Að framan mun hann fá nýjasta merki Volkswagen á endurhönnuðu grilli. Og á meðan aðalljósin virðast óbreytt hefur neðra grillið verið endurnýjað með stærri loftinntökum til hliðar.
Ef horft er frá hlið má sjá að 20 tommu felgurnar frá eldri gerðinni eru enn til staðar á þessum prófunarbíl en gera má ráð fyrir að ný hönnun á felgum verði sett á markað með uppfærðri gerð. Það er mjög fátt sem greinir að afturhluta þessa Touareg-prófunarbíls og bílsins sem er núna á markaði, þar sem afturljósin og uppsetning stuðara eru þau sömu. Jafnvel „Touareg“ letrið er eins, þó það virðist aðeins minna dreift en núverandi útgáfa.

Til grundvallar nýjasta Touareg verður sami MLB Evo undirvagn og áður, sem einnig er að finna í öðrum úrvalsjeppum VW Group, eins og Porsche Cayenne, Audi Q7, Bentley Bentayga og Lamborghini Urus.
Þetta þýðir að ólíklegt er að aflrásarlínan breytist svo búist er við 3,0 lítra V6 bensínvél með 335 hestöflum og annarri ásamt tengitvinnkerfi sem skilar samtals 456 hestöflum. Það ættu líka að vera tvær 3,0 lítra V6 dísilvélar með 228 hö og 282 hö. Hver aflrás verður tengd við Volkswagen 4MOTION fjórhjóladrifskerfi.
Í ljósi þess að Touareg notar nú þegar stærstu upplýsinga- og afþreyingarskjái Volkswagen (15 tommu skjá ásamt 12,3 tommu stafrænu mælaborði) sem hluta af „Innovision Cockpit“ skipulagi sínu, þá er ekki gert ráð fyrir að sjá breytingu hér hvað varðar andlitslyftu gerðina. Apple CarPlay og Android Auto munu snúa aftur sem og Wi-Fi heitur reitur.
Umræður um þessa grein