Volkswagen mun koma með 3 útgáfur af ID Buzz
- Rafbíllinn sem er með „gamaldags útliti“ mun verða með farþegaútgáfu, útgáfu fyrir samnýtingu í akstri og sem sendibíll
BERLÍN – Volkswagen ætlar að setja á markað þrjár mismunandi útgáfur af hinum væntanlegri alhliða ID Buzz sendibíl sínum, sem miðar að mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum
Í Evrópu mun sex sæta farþegaútgáfa miða að „samnýtingar“ þjónustu. Aftursæti verða aðgengileg hvert fyrir sig og verður hvert sæti með sérstakan upplýsingaskjá fyrir hvern farþega.
Bandaríkin munu fá afbrigði sem beinast að viðskiptavinum sem ferðast einir eða í litlum hópum. Sú gerð mun aðeins hafa fjögur sæti – tvö snúa fram og tvö snúa aftur í ökutækinu.
Þriðja útgáfan, ID Buzz Cargo, verður sendibifreið sem er að mestu leyti miðuð við pakkaþjónustu fyrirtæki sem vaxa vegna uppsveiflu netverslunarinnar.

ID Buzz á að fara í sölu seint á næsta ári í Evrópu og árið 2024 í Bandaríkjunum.

Sjálfkeyrandi sendibifreið
VW er að prófa ID Buzz frumgerðir með sjálfstæðan akstur á 4. stigi – sem þýðir að ökutækin geta keyrt sjálf við vissar aðstæður – til að vera tilbúin til fólksflutninga og vöruflutninga í atvinnuskyni fyrir 2025.
Bílaframleiðandinn sér möguleika á sjálfkeyrandi sendibifreið.
Á stefnukynningu fyrirtækisins fyrir árið 2030 þann 13. júlí sýndi Volkswagen sjálfkeyrandi ID Buzz með ökumannssæti sem sneri aftur í ökutækisins í staðinn fyrir að horfa á veginn fram undan.
Christian Senger, yfirmaður þróunarmála hjá VW vegna sjálfstæðs aksturs, sagði að sjálfakandi ID Buzz Cargo myndi útrýma kröfunni um mannlegan ökumann og myndi gera afhendingu pakka afkastameiri.
„Svar okkar er sjálfakandi sendibílar fyrir dreifikerfi morgundagsins, þar sem afgreiðslufólk þarf ekki lengur ökuskírteini og gerist farþegar sem einbeita sér að farmi þeirra og röð sendinga í afhendingu“, sagði Senger á stefnumótunarfundi VW 2030 þann 13. júlí.
Senger sagði að VW búist við 70 milljarða evra tekjum af hreyfanleikaþjónustu á fimm stærstu mörkuðum Evrópu árið 2030.
VW ætlar að velja sjálfakandi lausnir í akstri á ákveðnum mörkuðum fyrir árið 2025. Fyrirtækið sér verulega tekjumöguleika frá tilboðum, þ.mt samnýtingu farþega í akstri, auk sjálfvirkrar afhendingarþjónustu.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein