Fyrir skömmu síðan rak á fjörur mínar myndband sem fjallar um verðmætustu bílaframleiðendurna 2001 – 2021. Venjulega hef ég ekki áhuga á því hvað einhver fyrirtæki sem koma mér ekkert við eiga mikla peninga en þetta myndband er svo skemmtilega uppsett að ég má til með að deila því með ykkur.
Myndbandið er 2:40 mínútur í spilun en það er kryddað með ýmsum athyglisverðum atvikum sem höfðu áhrif á bílaiðnaðinn á þessum árum sem fjallað er um. Þannig að ef maður vill ekki missa af neinu þá þarf að stöðva myndbandið reglulega til að geta lesið allt svo það getur tekið mikið lengri tíma en þessar 2:40 mínútur að horfa á það.
Svo spillir ekki fyrir að það er sett upp eins og kappakstur á milli bílaframleiðendanna. Ég get horft á myndbandið aftur og aftur.
Umræður um þessa grein