Tvinnbílar og rafbílar seljast betur en dísilbílar í Evrópu í fyrsta skipti
Evrópskar skráningartölur sýna dísilbíla í öðru sæti við samanlagða sölu blendinga (hybrid), tengitvinnbíla, mildra blendinga og rafbíla
Bílar með rafdrifinni drifrás seldust betur en dísilgerðir í Evrópu í fyrsta skipti í síðasta mánuði samkvæmt nýjustu skráningartölum.
Alls voru 1,3 milljónir nýrra bíla skráðir í Evrópu í september, en 327.800 þeirra voru rafvæddir og um 322.400 með d´sisilvélum. Bensínbílar voru 47 prósent af markaðnum, þó að það hafi lækkað úr 59 prósentum í september 2019.

Helmingurinn dísilbílar fyrir áratug
Helmingur allra bíla sem seldir voru í Evrópu voru dísilbílar fyrir áratug. Sú markaðshlutdeild hefur nú lækkað í 24,8 prósent, þar sem áhrif frá „dísilhneykslinu“ eru enn til staðar. Yfirvöld hafa einnig lagt þrýsting á neytendur og bílaframleiðendur um að hreinsa upp staðbundið umhverfi og draga úr losun kolefnis á heimsvísu.
Samhliða því að dísilbílum fækkar hefur verið vöxtur rafmagns og rafmagns bíla. Tölurnar, samkvæmt upplýsingum Jato Dynamics, sýna að rafbílar, blendingar, tengitvinnbílar og mildir blendingar, voru um það bil 25,2 prósent af skráningartölunum í Evrópu í september.
Tölur Jato leiða í ljós að 53 prósent af skráningum í Evrópu í síðasta mánuði voru tvinnbílar eða mildir tvinnbílar, þar sem 69 prósent af allri sölu Ford Puma og 59 prósent af Fiat 500 skráningum, sem eru mild blendingaafbrigði.

Mildir blendingar geta í raun samanstaðið af af bíl með hefðbundinni brunavél með öflugri staratar/rafal og og rafhlöðu, sem tengt er háþróuðu start/stöðvunarkerfi. Flóknari mildir blendingar nota 48 volta kerfi sem skila meiri hagræðingu.
Þótt tölur Jato leiði ekki í ljós hlutfall hreinna rafbíla sem skráðir eru, sýna bresk gögn frá Samtökum bílaframleiðenda og bílasala að í september voru 31,9 prósent nýrra bíla rafvæddir, en hreinir rafbílar voru aðeins 6,7 prósent af markaðnum.
Burtséð frá því hvernig rafknúin ökutæki eru flokkuð benda nýlegar rannsóknir til þess að þó að neytendur geti haft forystu fyrir upptöku slíkra bíla séu sumar ríkisstofnanir eftirbátar, þar sem aðeins eitt prósent af Umferðarráðuneyti Bretlands sé ökutæki sem aðeins nota rafmagn.
(frétt á Auto Express)
Umræður um þessa grein