Þetta sáum við ekki fyrir: Geely frá Póllandi
Kannski gæti þetta verið næsti MG. Einfaldur, venjulegur rafbíll sem smeygir sér inn á markaðinn, og hefur allt í einu selt 2.500 bíla einfaldlega vegna þess að þeir eru fáanlegir, flottir og ódýrir. Skoðum Izera frá Póllandi.
Zhejiang Geely Holding Group Co., Ltd (ZGH), almennt þekkt sem Geely, og við þekkjum aðallega fyrir að vera móðurfyrirtæki Volvo og Polestar.
En fyrirtækið er kínverskt fjölþjóðlegt bílafyrirtæki með höfuðstöðvar í Hangzhou, Zhejiang. Fyrirtækið er í einkaeigu kínverska milljarðamæringsins Li Shufu. Það var stofnað árið 1986 og fór inn í bílaiðnaðinn árið 1997 með Geely Auto dótturfyrirtæki sínu.
Geely Auto er sem stendur sjöundi stærsti bílaframleiðandinn í Kína, með 1.328 milljón sölu í Kína árið 2021.
Á heimsvísu seldi samstæðan yfir 2,2 milljónir bíla árið 2021, og yfir 17.926 rafknúin ökutæki í janúar 2022
Margar tegundir undir sama hatti
Fyrirtækið framleiðir og selur bíla undir eigin vörumerkjum – eins og Geely Auto, Geometry, Maple og Zeekr – og undir erlendum dótturfyrirtækjum – eins og Volvo Cars, Polestar, Lynk & Co, Proton og Lotus – auk atvinnubíla eingöngu undir vörumerkjum London EV Company, Ouling Auto og Farizon Auto.
Það framleiðir einnig rafknúin farartæki undir sumum áður skráðum vörumerkjum og mótorhjól undir dótturfyrirtæki sínu Zhejiang Geely Ming Industrial (Jiming og Geely vörumerki), Qianjiang Motorcycle (QJMotor og Keeway vörumerki) og Benelli.
Í september 2022 eignaðist samstæðan 7,6% eignarhlut í Aston Martin Lagonda Global Holdings plc, hinu ofurlúxus breska frammistöðumerki Aston Martin.
En aftur að Izera
Jon Winding-Sørensen hjá vefnum BilNorge, var að skrifa um þennan nýja rafbíl undir hatti Geely sem verður framleiddur í Póllandi.
BilNorge hafði áður fjallað um bakgrunninn að þessari ítölsku hönnun og pólsku hugmynd, en á þeim tíma var hugmyndin aðeins spjall manna á milli.
Svo skall heimsfaraldurinn fyrir alvöru og að sjálfsögðu var hlutunum frestað þar til myndbandsfundi var komið á á milli Hangzhou og Varsjár.
Tilgangurinn „táknrænt handaband” í tilefni af samningi á milli fólksins á bakvið Izera og Geely Holding.
Margir möguleikar
Geely á svo margar hugmyndir sem liggja í hinum og þessum skúffum að það var ekkert mál að finna grunn sem væri hægt að nota á þennan nýja bíl.
Geely voru gjafmilidir og lofuðu yngsta og nútímalegasta grunni fjölskyldunnar – svokölluðum SEA grunni.
Skammstöfunin stendur fyrir „Sustainable Experience Architecture“ og grunnurinn er sá sami og notaður eru í nýja Smart #1 og nú þegar á jafn fjölbreyttum bílum og Lotus og Zeekr.
Bara samstarfsamningur
Þetta er hreinn leyfis-/samstarfssamningur. Ekkert er talað um að Izera verði hluti af Geely veldinu.
En samningurinn auðveldar án efa kynningu á Izera: enda engar áhyggjur af tækniþjálfun eða þjónustumarkaði.
Hreinn ávinningur
Fyrir Geely hlýtur það að vera áhugavert að fara inn á mið-evrópskan markað sem þeir, eða aðrir Kínverjar, hafa lítið sést.
Og fyrir Pólland gæti það þýtt að endurræsa bílaiðnað sem einu sinni var nokkuð blómlegur.
Þrjár fjórðu milljón fólksbíla voru framleiddir í Póllandi árið 2010, en í dag er hún um 100.000 bílar, þó framleiðsla sendibíla sé reyndar að aukast. Áður en langt um líður mun verksmiðjan í Jawor einnig hefja smíði sendibíla á VAN-EA grunni Mercedes-Benz.
Fyrir Izera verður ný verksmiðja reist í Jaworzno.
Ekkert hefur komið fram um afkastagetu en 2.400 starfsmenn munu koma að málum frá upphafi.
Pólland hefur ákveðið fyrir löngu að árið 2030 verði að minnsta kosti 600.000 raf- og tvinnbílar á pólskum vegum. Með öðrum orðum verður Izera með öruggan og góðan heimamarkað.
Þrjár mismunandi gerðir
Og það á ekki bara að horfa á eina gerð. Þrjár mismunandi yfirbyggingar hafa þegar verið staðfestar – sportjeppi, hlaðbakur og stationbíll – allir í svokölluðum C-stærðarhluta markaðarins í Evrópu.
(frétt á vef BilNorge).
Umræður um þessa grein