Hvar værum við nú á þeirra? Blessaðra bílaspæjaranna? Tjah, við værum kannski ekkert annars staðar í veröldinni en við myndum ekki vera svona agalega vel með á nótunum hvað bílaprófanir framtíðarbíla snertir!
Okkar maður, bílaspæjarinn sem við vitum auðvitað ekki hver er (spæjarar passa nú upp á slíkt) en kallast CarSpyMedia á YouTube og víðar, birti í gærkvöldi nýtt myndband þar sem hann „spæjaði“ Audi Q6 e-tron við prófanir.
Þetta er tekið í Nürburg í Þýskalandi en þar eru margir bílar prófaðir á hinum ýmsu stigum í þróunar- og framleiðsluferlinu.
Þetta er frumgerð 2023 af „stóra bróður“ Q4 e-tron og höfum við áður fjallað um þann stóra hér.
Segir bílaspæjarinn í þeim stutta texta sem fylgir myndbandinu að verið sé að prófa hinn nýja PPE-grunn (Premium Platform Electric) sem bíllinn er byggður á. Munu margar gerðir Audi og Porsche rafbíla nýta þennan grunn en hér má lesa allt um hann á ensku reyndar en þeir sem frekar kjósa íslenskuna geta lesið um grunninn í þessari grein okkar frá síðasta ári.
Hér er myndbandið frá bílaspæjaranum:
Umræður um þessa grein