Rolls-Royce ætlar í rafmagnið á þessum áratug
LONDON – Rolls-Royce er að þróa sjálfstæðan rafbíl til að undirbúa það að eiga bíl þegar lokun nokkurra miðbæja fyrir bílum með brennsluvélum kemur til framkvæmda.
Að minnsta kosti 20 stórborgir á heimsvísu hafa sagst ætla að banna dísil- eða bensínknúna bíla frá miðbæjarkjörnum sínum fyrir árið 2030.
Rolls-Royce mun bjóða fyrsta fulla rafknúna Rolls-Royce „innan þessa áratugar,“ sagði Torsten Müller-Ötvös forstjóri við Automotive News Europe í símaviðtali.
Rolls-Royce einbeitir sér að rafknúnum bílum og mun ekki selja tengitvinnbíla, sagði hann.
Viðskiptavinir Roll-Royce vilja rafmagn, sem „passar fullkomlega“ við vörumerkið, sagði Müller-Ötvös. „Það er hljóðlaust og með nægt tog og það er ástæðan fyrir því að fara beint úr brennslu í rafvæðingu“, sagði hann.
Fyrsti bíll Rolls-Royce er nú í þróun og verður byggður á sama álrýmisgrunni og núverandi lína bílaframleiðandans.
Rafbíll gæti komið í stað Wraith coupe og Dawn blæjubílsins, sem báðir eru að ljúka líftíma sínum, yfirmenn Rolls-Royce gáfu þetta í skyn við nýlegan viðburð frumsýningar á nýja Ghost fólksbílnum. Rolls-Royce staðfesti það ekki opinberlega.
Þó viðskiptavinir séu ekki að biðja um rafhlöðuknúinn ofurlúxusbíl gætu þeir neyðst til að skipta um bíl vegna lagasetningar, sagði talsmaður Rolls-Royce.
„Það er engin eftirspurn frá viðskiptavinum en við þurfum að vera í aðstöðu til að selja þeim bíl ef löggjöf bannar þeim að aka bíl með brennsluvél inn í miðbæ borgarinnar“, sagði talsmaðurinn.
Rolls-Royce sýndi rafútgáfu af fyrri Phantom fólksbílnum, sem kallast 102EX, á bílasýningunni í Genf 2011. Þróunarvinna við rafbíl hefur þó legið niðri síðan, meðal annars vegna takmarkana tækninnar.
Önnur ástæða er sú að Rolls-Royce trúir ekki á það að biðja viðskiptavini um að lyfta hleðslusnúru úr skottinu og stinga bílnum í samband passi við lúxusímynd vörumerkisins.
102EX var eitt fyrsti rafmagnshugmyndabíllinn sem var með þráðlausa spanhleðslu en Rolls-Royce hefur síðan orðið frekar afhuga hugmyndinni og vitnað til óhagkvæmni hennar og hugsanlegrar hættu.
Þess í stað vinnur vörumerkið með öðru fyrirtæki við að útbúa handlegg á þjarka (róbot) sem getur hlaðið bílinn sjálfkrafa.
Müller-Ötvös sagði að núverandi V-12 bensínvél vörumerkisins muni áfram gegna lykilhlutverki hjá fyrirtækinu. „Við sjáum framtíð fyrir vélina líklega til loka áratugarins“, sagði hann.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein