Renault kynnir þriðju kynslóð Kangoo
- Renault færir Kangoo ofar á markaðinn; hleypir af stokkunum ódýrum Express sendibíl
PARÍS – Renault er að færa nýju kynslóðina af Kangoo sendibílnum ofar á markaðinn, með auknum tengimöguleikum og valkostum sem lúta að aðstoð við ökumenn. Auk þess verður rafknúin útgáfa af bílnum fáanleg frá upphafi framleiðslu næsta vor.
Núverandi Kangoo var kynntur árið 2007. Renault smíðar einnig útgáfur af honum fyrir Daimler (Mercedes-Benz Citan) og bandalagsaðilann Nissan (NV250) í verksmiðju sinni í Maubeuge í Norður-Frakklandi. Mercedes hefur þegar tilkynnt að fyrirtækið muni selja farþegaútgáfu af nýja Kangoo sem kallast T-Class.
Hinn nýi Kangoo verður byggður á CMF C / D grunni Renault-Nissan Alliance í farþega- og sendibílaútgáfum. Bensín, dísil- og rafknúnar drifrásir verða fáanlegar, þó að Renault hafi ekki gefið nánari upplýsingar. Hugmyndaútgáfa af bílnum var sýnd í apríl 2019.
Bílaframleiðandinn sagði einnig á fimmtudag að hann muni setja Renault Express sendibifreiðina af ódýrari gerð á markað og endurvekja nafn sem notað var fyrir litla sendibíla byggða á Renault 5 á níunda og tíunda áratugnum.
Express er með svipaða hönnun og Kangoo en byggir á núverandi BO-grunni Dacia Dokker sendibílsins.
Express mun koma sem arftaki Dokker í framboði Renault Group og verður smíðaður í verksmiðju Renault í Tanger í Marokkó, en sala hefst næsta vor.
Sendibílsútgáfa af Express verður seld í Evrópu, ætluð „ungum frumkvöðlum og þeim sem eru með minni flota sendibíla“, en farþegaútgáfan er eingöngu ætluð alþjóðlegum mörkuðum, sagði Renault.
Renault segist hafa bætt hliðaraðgang með því að taka út miðjusúluna í Kangoo og gera kleift að opna hurðarop sem er 1.416 mm á breidd, tvöfalt meira en í núverandi Kangoo.
Auðveldari aðgangur, nýir eiginleikar
Meðal nýjunga í akstursaðstoð er stafrænn innri spegill sem sýnir varanlega baksýnismynd, sem Renault segir að sé gagnlegt í gerð lokaðra sendibíla. Aðrir eiginleikar fela í sér sveifluaðstoð eftirvagna, stöðugleikahemlun og háþróaða neyðarhemlun. Ökumenn geta tengst snjallsímum og Renault forritum með Easy Link margmiðlunarkerfinu.
Kangoo verður fáanlegur í tveimur lengdum. Rúmmál að innan verður 3,3 rúmmetrar til 3,9 rúmmetrar fyrir venjulegu útgáfuna og 4,2 rúmmetrar til 4,9 rúmmetrar í gerðinni með lengra hjólhaf.
Kangoo skipaði fjórða sætið á markaði í Evrópu í september á meðal lítilla sendibíla, samkvæmt JATO Dynamics, með 35.283 seld eintök. Citroen Berlingo leiddi flokkinn með 55.937 og Dokker skipaði 9. sætið með 12.772, sagði JATO.
Meðal sendibíla sem eru ætlaðir fyrir farþega (farþegaútgáfur af sendibifreiðum) var Dokker í fjórða sæti út september með 21.824 seld eintök og Kangoo var í sjötta sæti, með 12.070. Volkswagen Caddy – sem einnig mun setja á markað nýja kynslóð – leiddi flokkinn með 34.156.
Slíkir „sendibílar“, koma hratt í stað hefðbundinna stationbíla hjá evrópskum kaupendum á þessu ári. Þeir eru yfirleitt ódýrari í smíðum en „van-bílar“ og hafa lengri líftíma sem gerir bílaframleiðendum kleift að vinna að og hagnast á fjárfestingu sinni á lengri tíma.
(frétt á Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein