Rafbílar Jaguar verða dýrari
- Verð á rafbílum Jaguar verði svipað og á Bentley og Porsche
- Forstjóri JLR segir að nýir rafbílar vörumerkisins muni byrja á verði yfir 17 milljónum króna
LONDON – Nýir rafbílar Jaguar, sem aðeins er rafknúnir, mun byrja á um það bil 100.000 pundum (um 17,1 milljón ISK), sagði Thierry Bollore, forstjóri Jaguar Land Rover, í viðtali við breskt blað á dögunum.
Jaguar Land Rover hefur gefið til kynna að Jaguar muni ýta undir frekari markaðssetningu á hærra sviði markaðarins eftir að fyrirtækið tilkynnti „Reimagine“-viðsnúningsáætlun sína í febrúar, sem felur í sér að Jaguar vörumerkið hættir með hefðbundnar brunavélar frá árinu 2025.
Þetta er fyrsta skýra vísbendingin sem bílaframleiðandinn hefur gefið um verð á nýju rafknúnu framboði Jaguar, sem kemur á markað árið 2025. Bílarnir verða „nútímalegur lúxus“, segir Jaguar.
„Lúxus byrjar ekki langt frá 100.000 pundum,“ sagði Bollore við tímaritið Auto Express í viðtali.
JLR staðfesti þessi ummæli Bollore við Automotive News Europe.
Að verðleggja nýja bíla sína á um 100.000 pund myndi etja Jaguar gegn keppinautum eins og Bentley og Porsche, langt yfir núverandi keppni við BMW og Audi.
Bollore sagði við Auto Express að búið væri að undirbúa hönnunina fyrir úrval nýrra rafknúinna bíla Jaguar.
Hann gaf engar frekari upplýsingar um bílana. Tímaritið sagði að framboðið muni samanstanda af tveimur „crossover“ og einni sportlegri tveggja dyra gerð án þess að geta heimilda fyrir upplýsingar sínar.
Bollore hefur sagt að JLR muni leita utan fyrirtækisins að grunni fyrir rafbíla sem hentar Jaguar.
Jaguar mun líkja eftir „einstakri“ staðsetningu Range Rover til að staðsetja nýjar gerðir sínar á markaðnum, sagði Bollore í sérstöku viðtali við Autocar tímaritið í Bretlandi.
„Sjáðu Range Rover,“ sagði Bollore við tímaritið. „Sá er á verði sem virkar og skilar hagnaði en við höfum ekki enn náð þakinu. Verðið er jú óvenjulegt og við höfum magnið“.
Bollore sagði að Jaguar I-Pace rafknúni crossover-bíllinn yrði eini núverandi bíll vörumerkisins til að halda áfram eftir 2025, en að hann væri staðsettur á annan hátt en nýju gerðirnar.
Vilja verða „einstakir“
Bollore sagði að það hefði skaðað Jaguar vörumerkið að reyna að keppa við þýsku úrvalsmerkin BMW og Audi.
„Viðskiptavinir, þeir sjá bílinn, líkar við bílinn og prófa bílinn, og þeir fara enn og kaupa Audi eða BMW“, sagði Bollore. „Það er vandamálið. Fólk kaupir gerðir sem það þekkir. Við erum ekki komnir á þetta stig. Við verðum að ná staðsetningu Jaguar miklu öðruvísi, ofar og frumlegri.”
Hönnunarstjóri JLR, Gerry McGovern, hefur áður talað um nauðsyn þess að fá Jaguar aftur til þeirra tíma þegar hann var „afrit af engu“ og vísaði til E-gerðar sportbíla Jaguar frá sjöunda áratugnum sem dæmi.
Bollore, fyrrverandi forstjóri Renault og hægri hönd Carlos Ghosn, hefur gjörbreytt stefnu JLR síðan hann tók við af Ralf Speth í september síðastliðnum. Fyrirtækið hefur sagt að það vilji ekki lengur elta Audi, BMW og Mercedes og hefur horfið frá markmiði sínu að ná 1 milljón bílasölu árlega.
Bollore afskrifaði 1 milljarð punda fjárfestingar í fyrirhugaðan „Modular Longitudinal Architecture“ rafmagnaðan grunn sem hannaður var til að styðja meginhluta framtíðar Land Rover og Jaguar bílanna.
Hætt var með bíla á svokölluðum „MLA low“ og „MLA mid“ grunni, þar á meðal rafmagnsútgáfu af Jaguar XJ fólksbifreið, rafknúnum Land Rover sem kallaðaður var „Road Rover „ af bresku bílapressunni og Jaguar J-Pace sportjeppa.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein