Hann er 3,7 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. Það er gott. Hann er afturhjóladrifinn. Það er mikið gott. V10, já það er vel. Ég hef ekki komist í tæri við þennan bíl. Það er slæmt. Eiginlega afleitt. Samt veit ég að hann hljómar vel. Hér er meira að segja „tóndæmi“. En þetta sýnist mér einmitt vera svona bíll sem mann vantar. Sárlega.
Best að hafa ekki um það fleiri orð að sinni en meðfylgjandi myndir eru frá Audi.com.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein