Nýr 2022 Mazda CX-60
Nýr 2022 Mazda CX-60 tengitvinnsportjeppinn sem var frumsýndur í dag er öflugasti bíll fyrirtækisins frá upphafi
Mazda CX-60 er fyrsti tengitvinnbíll vörumerkisins og er hannaður til að fara í samkeppni við sportjeppa eins og BMW X3
Það stóðu margar bílavefsíður á öndinni í gær og biðu eftir frumsýningu á nýjasta útspili Mazda í Japan, enda stóð ekki á viðbrögðunum eftir frumsýninguna.
Gefum Felix Page hjá Autocar orðið:
„Mazda CX-60 er kominn í efsta sæti evrópskrar vörulínu vörumerkisins, og kemur með fyrstu tengitvinn-aflrás Mazda, sem parar saman 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél og rafknúinn mótor í nýja átta gíra gírkassanum. Útkoman er 323 hestöfl og 500 Nm, sem gerir þetta að öflugasta fólksbíl vörumerkisins hingað til.
Á sama tíma veitir 17,8kWh rafhlaða akstursdrægni allt að 60 km. Þessar tölur gera bílinn vel samkeppnishæfan gagnvart PHEV keppinautum á svipuðu verði; Volvo XC60 Recharge og BMW X3 xDrive40e.
Búist er við að aflrás CX-60 PHEV komi honum úr 0-100 km/klst á 5,8 sekúndum og losi aðeins 33g/km af CO2 á WLTP blönduðum akstri.“
Beint í samkeppni við þýsku úrvalsmerkin
Auto Express á Englandi dregur ekki neitt úr heldur, og gefum hér Yousuf Ashraf hjá Auto Express orðið:
„Með nýja CX-60 er Mazda að setja stefnuna beint á Audi og BMW. Fyrirtækið er að færast ofar á markaði til að keppa við þýsk gæðamerki. CX-60 státar af glæsilegu farþegarými, tvinnafli og flottri hönnun og það gerir hann vel í stakk búinn til að keppa við BMW X3.
CX-60 er stærri en CX-5 crossover og er í anda „Kodo“ hönnunarstefnu Mazda sem leggur höfuðáherslu á einfaldleika.
Mjúkur framendinn er með stóru, vængjuðu grilli sem blandast inn í framljósin með mjóum LED dagljósum (sem einnig eru stefnuljós), í samræmi við núverandi „fjölskyldusvip“ Mazda.
Áberandi hjólskálarnar og hliðarsílsar undirstrika hönnunina, þó að restin af hönnuninni sé að mestu látlaus. Það er lúmskur snúningur í yfirbyggingunni meðfram köntunum, með pari af aflöngum afturljósum, fjórum útblástursstútum og vindskeið á þaki sem klárar afturendann – sem er viðeigandi fyrir það sem verður öflugasti fjöldaframleiðslubíll Mazda frá upphafi.
Nýjar drifrásir og tengitvinn
CX-60 er með glænýjum aflrásum í öllu framboðinu. Frá og með kynningu verður hann aðeins boðinn sem tengitvinnbíll, sem parar saman 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél við rafmótor fyrir samtals 323 hestöfl.
Aflið er sent á öll fjögur hjólin í gegnum átta gíra sjálfskiptingu, sem gerir CX-60 kleift að rjúka úr 0 í 100 km/klst á aðeins 5,8 sekúndum.
Rafmótorinn er knúinn af 17,8kWh rafhlöðu sem hægt er að fullhlaða á fjórum klukkustundum úr venjulegri heimahleðslustöð. Mazda heldur því fram að CX-60 geti ekið allt að 60 km í hreinum rafknúnum akstri, á allt að 100 km hraða, en vörumerkið gefur upp skilvirkni upp á 188mpg og 33g/km af CO2.
Ný dísilvél í lok þessa árs
Í lok þessa árs mun Mazda setja á markað 3,3 lítra línu sex strokka dísil með 48V mild-hybrid tækni. Bensínbíll með 3,0 lítra líínu-sexu kemur í kjölfarið árið 2023, aftur með mildu blendingskerfi og Skyactiv X-tækni frá Mazda.
CX-60 notar Skyactiv Scalable Architecture frá Mazda og tekur upp „Kinematic Posture Control“ kerfið frá MX-5 sportbílnum.
Kerfið beitir bremsunum á innra afturhjólið til að koma í veg fyrir veltihreyfingu yfirbyggingar og rafhlöður fyrir blendingskerfið eru festar á milli fram- og afturöxla CX-60.
Ökumaður getur valið á milli Normal, Sport, Off-Road, Towing og EV- stillingar eftir akstursaðstæðum, og „Hill Decent Control“ gerir bílnum kleift að fara hægt niður brattar og hálar brekkur.
570 lítra farangursrými
Þrátt fyrir flækjur tvinnkerfisins hvað varðar pláss býður CX-60 upp á 570 lítra farangursrými, sem er á pari við keppinautana.
Hægt er að fá bílinn í þremur útfærsluþrepum: Exclusive-Line, Homura og Takumi.
Grunngerð bílsins fær 18 tommu felgur og svarta yfirbyggingarklæðningu, Homura bætir við svörtum 20 tommu felgum, svörtum hliðarspeglum og dekkra grilli. Að innan fá bílar í næsta búnaðarstigi m.a. hita í aftursætin, umhverfislýsingu og sjálfvirkt sætisstillingarkerfi.
Þetta gerir ökumanni kleift að tilgreina hæð sína í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu, með innri myndavélum sem skynja augnstöðu þeirra og stilla sæti, stýri og spegla eftir þörfum.
Takumi, sem er toppgerðin, er með samlita hliðarspegla, gljáandi svart grillnet og krómklæðningu fyrir umgjörð grillsins og hliðarglugga.
Ódýrasta CX-60 Exclusive-línan er eina útgáfan sem er fáanleg með 1.400 punda þægindapakkanum, sem kemur m.a. með 20 tommu álfelgur, rafknúin framsæti, hita/kælingu í framsætum og hita í aftursætum.
Hægt er að fá panorama sóllúgu með Homura og Takumi gerðum auk annars aukabúnaðar. 1.000 punda þægindapakkinn kemur með litað gler, þráðlausa símahleðslu og 360 gráðu myndavél.
Hægt er að panta CX-60 PHEV í Englandi og hefjast afhendingar í haust.
(vefsíður Autocar og Auto Express – myndir frá Mazda)
Umræður um þessa grein