Ný hönnun á leiðinni frá Peugeot
Ný Peugeot Inception Concept hönnun kynnt – en mun sjást í byrjun janúar
Nýja hönnunin frá Peugeot mun sýna framtíðarhönnun vörumerkisins
Nýr Peugeot hugmyndabíll verður frumsýndur í ársbyrjun 2023 og mun forsýna hönnun framtíðarbíla frá franska vörumerkinu. Bíllinn mun birtast á Consumer Electronics Show í Las Vegas, sem kallast Inception Concept ( eða „hugmynd upphafs“), þann 5. janúar.
Þar sem Peugeot stefnir að því að bjóða upp á rafknúna útgáfu af gerðum sínum árið 2024 mun Inception Concept næstum örugglega vera með rafdrifinni aflrás. Þrátt fyrir að engar tæknilegar upplýsingar um Inception Concept hafi verið opinberaðar, gerum við ráð fyrir að þessi bíll noti nýja Stellantis STLA grunninn, sem gæti hugsanlega fengið 51kWh rafhlöðu.
Í nýjustu kynningarmyndinni og myndbandinu getum við séð hina almennu „Tiger-claw“ ( eða „tígris kló“) hönnun Peugeot.
Við höfum séð þessa hönnun birtast í núverandi Peugeot línu og á alrafmagnaða e-Legend hugmyndabílnum frá 2018 líka.
Annað vörumerki Peugeot upp á síðkastið hefur verið hönnun dagljósanna, þó ekki sé ljóst hvort hugmyndin muni stýra frá þeirri hönnun framan af.
„i-Cockpit“ innra skipulag Peugeot er einstakt lykilatriði í vörumerkinu og nýi hugmyndabíllinn mun sýna endurskoðaða útgáfu af því.
Gera má ráð fyrir að sjá þróun á „i-Cockpit“ sem er í dag í núverandi Peugeot gerðum, þó fyrirtækið segi að hugmyndin muni bjóða upp á „byltingarkennda innanhússhönnun“.
Stutt sýn á innri snertiskjá sýnir nýjan upplýsinga- og afþreyingarstíl.
Auto Express ræddi nýlega við Matthias Hossan, hönnunarstjóra Peugeot, sem sagði „við erum að þróa hugmynd en einnig að þróa nýja vinnuaðferð”.
Við erum að leita að því að skapa meira innra rými með sama kolefnis fótspori.
Að utan verður hann auðþekkjanlegur sem Peugeot.“
The Inception Concept mun einnig hafa áherslu á sjálfbærni. Hossan sagði einnig að Peugeot hefði „meiri og meiri áhuga á sjálfbærum efnum“ og að hönnunarteymi hans „hugsi um líftíma efnanna“.
Við verðum greinilega að bíða þar til eftir áramótin að sjá þetta betur!
(frétt á Auto Express – myndir Peugeot)
Umræður um þessa grein