Mitsubishi Pajero hættir endanlega
- Mitsubishi Motors sér fram á tap annað árið í röð, hættir framleiðslu á Pajero jeppanum
TOKYO – Mitsubishi Motors á mánudag spáði öðru tapa ári sínu, vegna minnkandi sölu að hluta vegna að hluta til vegna heimsfaraldursins. Þeir hafa þegar tilkynnt um samdrátt á Evrópumarkaði.
Sem hluta af endurskipulagningaráætlun sinni sagði Mitsubishi, sem er þáttakandi í bifreiðasamstarfshópi Nissan-Renault, að þeir myndu hætta að smíða Pajero jeppann á næsta ári og loka verksmiðjunni í Japan sem smíðar bílinn. Áður var búið að tilkynna að Pajero væri hættur á Evrópumarkaði
Framleiðandi Outlander jeppans sagði að þeir myndi draga úr viðveru sinni í Evrópu og Norður Ameríku og einbeita sér að því að vaxa í Asíu.
Til að varðveita peninga sagði bílaframleiðandinn að það myndi ekki greiða arð á þessu ári.
Kórónaveirukreppan hefur aukið baráttu hjá fyrirtækinu sem þegar hafði barist við minnkandi sölu í Kína og Suðaustur-Asíu, stærsta markaði þess sem stendur fyrir fjórðungi sölu.
Skipulagsáætluninni er ætlað að hækka rekstrarhagnað fyrirtækisins í 50 milljarða jen árið 2022/23 og auka rekstrarafkomu í 2,3 prósent úr -9,5 prósent nú.
(Reuters / Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein