Maxus eT90 rafknúni pallbíllinn er kominn
Maxus eT90 er fyrsti rafknúni pallbíllinn í Evrópu og hægt að skoða hann hjá Vatt í Skeifunni
Við sögðum frá því á dögunum að Vatt, dótturfyrirtæki Suzuki bíla, væri að fara að taka heim nýjustu viðbótina í framboðið hjá þeim, nýja rafdrifna pallbílinn frá Maxus – eT90.
Núna eru fyrstu bílarnir komnir í hús og hægt að skoða bílinn í sýningarsalnum hjá Suzuki í Skeifunni og annar er í hleðlsu fyrir utan fyri þá sem viðja skoða hann enn betur.
Maxus T90 EV er stór, rafknúinn fimm sæta pallbíll með kraftalegu útliti og ríkulega búinn. Hann kemur með 88,5 kWst rafhlöðu og akstursdrægið er 330 km (WLTP í blönduðum akstri).
Burðargeta bílsins er 1.000 kg og hann er fáanlegur með dráttarbeisli. eT90 nýtist jafnvel sem fjölskyldu- og ferðabíll eins líka sem pallbíll fyrir smærri fyrirtæki.
BÚNAÐUR OG ÖRYGGI
Maxus T90 EV er einkar vel búinn bíll. Farþegarýmið er plássmikið og nútímalegt.
Þar er meðal annars að finna 10,3“ snertiskjá, ökumannssæti með 6 stillingum og framfarþegasæti með 4 stillingum, Apple CarPlay, leðurklædd sæti og leðurklætt stýri stillanlegt á tvenna vegu.
Aflið er gefið upp 204 hö og hámarkstog er 310 NM. Grif er á afturhjólum
Engu er til sparað í öryggi. Bíllinn kemur meðal annars með rafeindastýrðri stöðugleikastýringu, bakkmyndavél, bílastæðavara og brekkuvara.
RAFHLAÐA OG HLEÐSLA
Maxus T90 EV kemur með 88,5 kWst rafhlöðu.
Hægt er að hlaða bílinn með hraðhleðslu úr 20-80% hleðslu á 45 mínútum við eðlilegt hitastig.
Hámarks hleðsluafköst eru 80 kW. eT90 kemur með CCS hleðslustaðli.
AKSTURSDRÆGI OG ORKUNOTKUN
Uppgefið akstursdrægi Maxus T90 EV er 330 km* (WLTP í blönduðum akstri). Þar sem T90 EV er gerðarviðurkenndur sem atvinnubíll fer WLTP prófunin fram með þungum farmi.
Til samanburðar má nefna að fólksbílar eru prófaðir án hleðslu og farþega.
Akstursdrægi allt að skv. WLTP í innanbæjarakstri er 471 km.
*Margt getur haft áhrif á akstursdrægið, s.s. akstursmáti, hitastig, loftþrýstingur í hjólbörðum og fleira. Uppgefið akstursdrægi grundvallast á WLTP prófum í blönduðum akstri.
ÁBYRGÐ
Maxus T90 EV fylgir ábyrgð til 5 ára/100.000 km og ábyrgð á rafhlöðu til 8 ára/200.000 km.
Bílarnir koma allir með ryðvörðum undirvagni sem er innifalið í verði bílsins.
VERÐ
T90 EV pallbíll 88.kwh Kynningaverð: verð án vask: 9.048.837 – Verð með VSK: 9.900.000
Umræður um þessa grein