- ?Kia afhjúpar nýja Niro bílinn bæði sem 100% rafbíl og einnig sem „hybrid“ einmitt þegar samkeppni rafbíla harðnar
- ?Bílaframleiðandinn mun kynna aðra kynslóð tvinn- og rafbíla á næsta ári
Kia afhjúpaði í gær nýja Niro-sportjeppann með rafknúnum og tvinndrifnum aflrásum þar sem bílaframleiðandinn og samstarfsaðili hans, Hyundai, leitast við að ná árangri á rafbílamarkaðnum.
Nýr Niro, uppfærð útgáfa af gerðinni sem kom fyrst árið 2016, verður fáanlegur sem tvinnbíll á fyrsta ársfjórðungi 2022 og sem rafknúin gerð síðar á fyrri hlutanum, sagði bílaframleiðandinn þegar bíllinn var kynntur á bílasýningunni í Seoul, fimmtudaginn 25. nóvember.
Kia gaf ekki miklar upplýsingar um nýju gerðina, og því ekkert hægt að segja um aksturssvið eða verð.
„Hinn nýi Kia Niro er umhverfisvænt módel sem sýnir vilja okkar og getu til sjálfbærni við framleiðslu,“ sagði forstjórinn Ho-Sung Song við fréttamenn á bílasýningunni.
Í bílinn eru notuð umhverfisvæn efni, eins og endurunnar trefjar og málningu sem ekki inniheldur bensen. Bílaframleiðandinn stefnir að því að nota 20 prósent endurunnið plast í allar gerðir árið 2030.
Fyrsta kynslóð Niro náði vinsældum í Evrópu vegna samkeppnishæfni í verði og góðs aksturssviðs, sagði Kim Jin-Woo, sérfræðingur hjá Korea Investment & Securities í Seoul.
„Nýi Niro gæti verið sanngjarnt val fyrir neytendur sem eru að leita að fyrirferðarlitlu rafknúnu ökutæki ef hann hefur meira en 350 kílómetra drægni,“ sagði hann. Fyrri gerðin var með drægni upp á um 385 kílómetra.
Kia hefur selt 75.360 Niro á þessu ári í Evrópu fram í október, samkvæmt JATO Dynamics, sem er 18,2 prósenta aukning frá árinu 2020. Niro var í níunda sæti yfir almenna minni sportjeppa fram í september, samkvæmt JATO.
Yfir heildina var Kia í sjötta sæti í sölu rafbíla í Evrópu á fyrri helmingi ársins, samkvæmt upplýsingum frá bílasérfræðingnum Matthias Schmidt.
(Byggt á umfjöllun fréttastofu Bloomberg og Automotive News Europe um heimsfrumsýningu á nýjum Kia Niro)
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein